Sögð hafa ætlað að giftast Manson til að fá aðgang að líki hans Birgir Olgeirsson skrifar 10. febrúar 2015 11:06 Charles Manson. Vísir/AP
Talið er að ekkert verði af brúðkaupi bandaríska raðmorðingjans Charles Manson og hinnar 27 ára gömlu Afton Elaine Burton. Það er bandaríski blaðamaðurinn Daniel Simone sem greinir frá þessu í frétt á vef New York Post en þar segir hann Manson hafa komist að því að Burton hafi einungis viljað giftast honum til að fá aðgang að líki hans. Er Burton sögð hafa ætlað sér að auðgast á líki Manson með því að geyma það í glerbúri í Los Angeles. Simone bætti við að Manson telji sig vera ódauðlegan og því hugmyndin frekar fáránlega að mati raðmorðingjans. Hjúskaparleyfi Manson og Burton rann út síðastliðinn fimmtudag en Simone segir Manson vongóðan um að það verði endurnýjað. Burton er sögð hafa beðið Manson um að undirrita skjal fyrir tveimur árum þar sem hann veitir henni og félögum hennar leyfi til að geyma lík hans í búri. „Hann sagði hvorki já né nei við því. Hann hélt þeim bara heitum,“ sagði Simone og sagði Manson hafa gert það því Burton og félagi hennar færðu honum reglulega snyrtivörur og annan varning. Þegar ljóst var í fyrra að Manson myndi ekki verða við þessari beiðni þeirra um aðgang að líki hans var stungið upp á hjónbandi. Simone segir Manson aldrei hafa ætlað sér að kvænast Burton. „Hann var aldrei samþykkur því og verður aldrei.“
Tengdar fréttir Charles Manson heimilað að gifta sig Bandaríski fjöldamorðinginn hefur fengið heimild frá yfirvöldum til að ganga að eiga 26 ára unnustu sína. 17. nóvember 2014 23:31 Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Sjá meira
Charles Manson heimilað að gifta sig Bandaríski fjöldamorðinginn hefur fengið heimild frá yfirvöldum til að ganga að eiga 26 ára unnustu sína. 17. nóvember 2014 23:31