Strauss-Kahn neitar að hafa verið melludólgur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. febrúar 2015 13:07 Dominique Strauss-Kahn þvertekur fyrir að hafa framið glæp með þátttöku sinni í kynlífssvalli á árum áður. Vísir/AFP
Réttarhöld í máli Dominique Strauss-Kahn, fyrrum forstjóra Alþjóðagjaldeyrisins, fara nú fram í borginni Lille í Frakklandi. Strauss-Kahn er ákærður fyrir að hafa útvegað vændiskonur í kynlífssvall sem hann á að hafa tekið reglulega þátt í á árum áður. Ekki er ólöglegt að kaupa vændi í Frakklandi en það er ólöglegt að hafa milligöngu um það og útvega vændiskonur. Strauss-Kahn neitar að hafa komið nokkuð nálægt því og segir saksóknara ýkja hlutverk sitt í kynlífssvallinu. Hann sagði fyrir rétti í dag aðeins hafa tekið þátt í 12 kynlífspartýum á þremur árum og þvertekur fyrir að hafa framið nokkurn glæp. Saksóknarar halda því hins vegar fram að Strauss-Kahn hafi verið aðalmaðurinn á bakvið svöllin og lýsa honum sem „partýkóngi“. „Hann gerði þetta til að skemmta sér,“ sagði saksóknari. Verði Strauss-Kahn fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi auk þess sem hann gæti fengið sekt upp á 1,5 milljónir evra sem samsvarar rúmum 200 milljónum króna. Strauss-Kahn var lengi vel talinn líklegur til að verða forseti Frakklands en í kjölfar þess að kynlífshneyksli hans komust í hámæli runnu þær fyrirætlanir út í sandinn. Í myndbandinu hér að neðan má sjá mótmælendur frá samtökunum FEMEN gera aðsúg að bíl Strauss-Kahn þegar hann kom í réttinn í dag.
Tengdar fréttir Samsæriskenningar í kringum handtöku Strauss-Khan Samsæriskenningar í tengslum við handtöku Dominique Strauss-Khan forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru töluvert til umfjöllunar í frönskum fjölmiðlum í morgun. 17. maí 2011 07:48 Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetur vindmyllur Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Sjá meira
Samsæriskenningar í kringum handtöku Strauss-Khan Samsæriskenningar í tengslum við handtöku Dominique Strauss-Khan forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru töluvert til umfjöllunar í frönskum fjölmiðlum í morgun. 17. maí 2011 07:48