„Hún er jafn raunveruleg og Dirty Harry“ Birgir Olgeirsson skrifar 29. janúar 2015 16:42 Jesse Ventura, fyrrverandi ríkisstjóri Minnesota, ætlar ekki að sjá kvikmyndina American Sniper. Hann vann meiðyrðamál gegn dánarbúi Chris Kyle vegna ummæla sem birtust í bókinni American Sniper sem fjallar um líf Kyles. Getty.
Ein umtalaðasta kvikmyndin um þessar mundir er án nokkurs vafa American Sniper sem segir frá lífi bandarísku leyniskyttunar Chris Kyle. Leikstjóri myndarinnar er Clint Eastwood og fer leikarinn Bradley Cooper með hlutverk Kyles í myndinni. Margir hafa lýst yfir óánægju með myndina og eru þeirra á meðal leikarinn Seth Rogen og leikstjórinn Michael Moore. Sá sem hefur hvað lengst haft horn í síðu Kyles er fyrrverandi ríkisstjóri Minnesota, Jesse Ventura, sem hefur harðneitað að sjá myndina.Vann meiðyrðamál gegn dánarbúi Kyles Ventura var áður í sérsveit bandaríska sjóhersins(Navy Seal) en í fyrra vann hann meiðyrðamál gegn dánarbúi Chris Kyle, sem einnig var í umtalaðri sérsveit, vegna ummæla sem birtust bókinni American Sniper sem fjallar um líf Kyles. Ventura sakaði Kyle um að hafa skáldað kafla í bók sinni en þar sagðist Kyle hafa kýlt karlmann á bar í Kaliforníu árið 2006 fyrir að hafa sagt að sérsveit bandaríska sjóhersins ætti skilið að missa nokkra liðsmenn í Írak. Kyle sagði manninn hafa verið Jesse Ventura en sá síðarnefndi hélt því fram að þetta hefði aldrei gerst og fékk 1,8 milljónir dollara í bætur frá dánarbúi Kyles vegna meiðyrða.Chris Kyle.Getty„Enginn heiður í lygi“ Í augum Ventura er Kyle engin hetja líkt og hann birtist í kvikmyndinni American Sniper og segist ekki ætla að sjá myndina. „Hetja verður að vera heiðarleg og þú getur ekki verið heiðarlegur ef þú ert lygari. Það er enginn heiður í lygi,“ segir Ventura við The Associated Press. Hann segir American Sniper auk þess vera áróðurstæki fyrir stríðsrekstur Bandaríkjanna vegna þess hvernig Íraksstríðið er tengt við hryðjuverkaárásarinar í New York 11. september árið 2001 í myndinni. „Hún er jafn raunveruleg og Dirty Harry,“ segir Ventura og vísar þar í kvikmyndir um lögreglumanninn Dirty Harry sem Clint Eastwood lék á árum áður. Eftir að hafa unnið meiðyrðamálið gegn dánarbúi Kyles þá fjarlægði útgefandi bókarinnar, HarperCollins, kaflann sem fjallaði um Ventura. Dánarbúið hefur áfrýjað þessum dómi og á eftir að taka fyrir stefnu Ventura á hendur HarperCollins.Var áður fjölbragðaglímukappi Ventura var á árum áður fjölbragðaglímukappi en hefur einnig getið sér gott orð í heimi kvikmyndanna og leikið í myndum á borð við Predator og The Running Man. Aðalleikari þeirra mynda var Arnold Schwarzenegger sem síðar varð ríkisstjóri Kaliforníu. Kyle lést á skotsvæði árið 2013 en en réttarhöld gegn manninum sem er ákærður fyrir að hafa orðið valdur að dauða hans hefjast í Texas næsta mánuði.
Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetur vindmyllur Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Sjá meira