Dæmdum nauðgara og morðingja neitað um líknardauða Atli Ísleifsson skrifar 6. janúar 2015 16:00 Læknar segja Frank van den Bleeken ófæran um að hafa stjórn á kynferðislegum hvötum sínum. Vísir/AFP
Belgískur maður sem afplánar nú lífstíðardóm vegna nauðgana og morðs hefur verið neitað um aðstoð frá læknum til að binda endi á líf sitt. Dómsmálaráðherra Belgíu segja yfirvöld hafa hafnað beiðni mannsins.Í frétt BBC kemur fram að dómsmálaráðherrann Koen Geens virði þar með ráðleggingar lækna sem segja fangann Frank van den Bleeken ófæran um að hafa stjórn á kynferðislegum hvötum sínum. Geens sagði jafnframt að van den Bleeken verði fluttur til vistunar á nýju geðsjúkrahúsi. Belgía er eitt af þremur Evrópuríkjum sem heimila líknardráp í tilvikum dauðvona fólks. Mán van den Bleeken er fyrsta málið sem snertir fanga síðan líknardrápslöggjöfin tók gildi í landinu fyrir tólf árum síðan. Sérstök nefnd sem fjallar um beiðnir um líknardráp samþykkti beiðni mannsins í september.Vill deyja Dómsmálaráðuneyti Belgíu greindi frá því í tilkynningu fyrr í dag að læknar hafi ákveðið að hætta við fyrirhugaða meðferð van den Bleeken. Til stóð að meðferðin hæfist þann 11. janúar en í samtali við BBC segir talsmaður ráðuneytisins að læknirinn sem átti að halda utan um meðferðina hafi hætt við aðild sína að málinu. Hinn 52 ára van den Bleeken var dæmdur á níunda áratugnum fyrir fjölda kynferðisárása og morð. Hann sagðist í samtali við belgíska sjónvarpsstöð árið 2013 sjálfur vilja deyja, frekar en að verja þeim tíma sem hann á eftir ólifaðan í fangelsi. „Ég er í klefa mínum 24 tíma sólarhringsins. Það er líf mitt. Mér finnst ég ekki vera mennskur þarna. Hvað get ég gert? Verð ég að sitja þarna og veslast upp? Hver er tilgangurinn með því?“ Lögmenn mannsins segja engar líkur á að honum verði nokkurn tímann sleppt þar sem hann hefði enga stjórn á kynferðislegum hvötum sínum. Þá segja þeir vitneskjuna um að hann þurfi að verja restina að lífi sínu í fangelsi valda honum miklum sálfræðilegum skaða.
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent „Hann er að leika sér að eldinum!“ Erlent Náðar spilltan fógeta Erlent Fleiri fréttir „Hann er að leika sér að eldinum!“ Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Náðar spilltan fógeta Telja vanrækslu hafa valdið mannskæðu þyrluslysi í Finnlandi Fjögur börn í hópi þeirra mest slösuðu „Bara sjokk hvað maður var nálægt þessu“ Einn í haldi eftir að ekið var á fólk í Liverpool Deila enn um „stóra fallega“ frumvarpið Hnekkti dómi fyrrverandi kanslara fyrir meinsæri Hjónaerjur í opinberri heimsókn Macrons Mestu árásirnar hingað til, aftur Kim reiður yfir misheppnaðri sjósetningu Útskrifuð af geðdeild daginn fyrir stunguárásina í Hamborg Konur og karlar fái sortuæxli á ólíkum stöðum Mannfall þegar skólabygging var sprengd Segir Pútín „genginn af göflunum“ og íhugar refsiaðgerðir Frestar fimmtíu prósenta tollum á Evrópusambandið Ætla að hernema stærstan hluta Gasa og smala íbúum á afmörkuð „öryggissvæði“ Fundu lík fimm skíðamanna nærri Zermatt Umfangsmestu loftárásir frá upphafi stríðs Níu af tíu börnum tveggja lækna létust í árásum Ísraela Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Tólf særðir eftir hnífstunguárás í Hamborg Vilja breyta mannréttindasáttmála til að auðvelda sér að sparka innflytjendum úr landi Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Ákærður fyrir að myrða sendiráðsstarfsfólk Ísraels Netanjahú segir Starmer, Macron og Carney draga taum Hamas Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Sjá meira