Lífið

Hjón létust með átta klukkustunda millibili

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gene og Pat kynntust í barnaskóla og giftust á laun sem táningar.
Gene og Pat kynntust í barnaskóla og giftust á laun sem táningar. Vísir/Getty
Hjón í Ohio í Bandaríkjunum sem höfðu verið gift í 69 ár dóu með átta klukkustunda millibili í þann 27. desember síðastliðinn. Sonur þeirra segir að það hafi ekki komið sér á óvart að þau skyldu deyja með svo stuttu millibili.



Hjónin, Gene Warrington, 88 ára, og Pat Warrington, 86 ára, dvöldu saman á líknardeild en voru þó ekki saman í herbergi. Degi áður en þau létust fór Gene og heimsótti konu sína og hélt í hönd hennar. Hann áttaði sig á því að hún ætti skammt eftir ólifað.

Gene tók því sjálfur úr sambandi slöngur sem tengdar voru í hann og lést skömmu síðar. Átta klukkustundum seinna dó Pat.

Gene og Pat kynntust í barnaskóla og giftust á laun sem táningar á meðan Gene var heima í fríi frá þjálfunarbúðum áður en hann fór og barðist í seinni heimsstyrjöldinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.