Innlent

Samtök atvinnulífsins bjóða 47 þúsund króna hækkun á lægstu töxtum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorsteinn Víglundsson er framkvæmdastjóri SA.
Þorsteinn Víglundsson er framkvæmdastjóri SA. vísir/GVA
Samtök atvinnulífsins bjóða 24 prósenta hækkun dagvinnulauna en þetta kemur fram í tilkynningu frá SA.

SA svara í tilkynningunni orðum Björns Snæbjörnssonar, formanni Starfsgreinasambandsins, en hann sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að Samtök atvinnulífsins sýni sambandinu ósvífni með tilboði um hækkun dagvinnulauna með því að lengja dagvinnutímann og lækka álag á yfirvinnu um 30 prósentustig.

Björn segir Samtök atvinnulífsins hafa kynnt ákveðnar hugmyndir á samningafundum um helgina sem fælu í sér að lægsti kauptaxti hækkaði um 28 þúsund krónur á næstu þremur árum.

Í tilkynningu SA segir að í ljósi ummæla formanns Starfsgreinasambandsins þar sem samningstilboð SA sé afbakað gróflega sé rétt að það komi fram að tilboðið feli í sér 23,5 prósent hækkun dagvinnulauna á þriggja ára samningstíma.

„Innifalið í þeirri hækkun er 8% sérstök hækkun dagvinnulauna, samhliða auknum sveigjanleika vinnutíma og lækkun yfirvinnuálags. Með þeim hætti yrðu grunnlaun hækkuð sérstaklega og vægi dagvinnulauna í heildartekjum myndi aukast,“ segir í tilkynningu SA.

Samkvæmt tilboði SA hækkar lægsti taxti aðildarfélaga SGS um 47. þúsund krónur á mánuði á þremur árum. Meðaldagvinnulaun félagsmanna aðildarfélaga SGS hækkuðu úr 260. þús. kr. á mánuði í 320 þúsund. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×