Skoraði hjá sjálfum sér með hjólhestaspyrnu | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2015 23:15 Mohammad Shatnawi. Vísir/Getty
Markvörður Al Faisaly liðsins í Jórdaníu skoraði afar furðulegt sjálfsmark í einum stærsta leik liðsins á tímabilinu og er ekki beint vinsælasti maðurinn hjá stuðningsmönnum félagsins. Al Faisaly tapaði 3-0 í Ammam derby-leiknum á móti Al-Wehdat en það var annað mark leiksins sem komst í heimsfréttirnar enda ekki á hverjum degi sem markmenn skora með hjólhestaspyrnu og hvað þá í vitlaust mark. Mohammad Shatnawi er landsliðsmarkvörður Jórdaníu auk þess að verja mark Al Faisaly en hann vill örugglega gleyma þessu marki sem sá til þess að mótherjar hans komust í 2-0 í leiknum. Shatnawi byrjaði reyndar á því að verja vel frá sóknarmanni Al-Wehdat úr dauðafæri í vítateignum en í stað þess að grípa boltann eða koma frákastinu í burtu frá markinu, þá skoraði hann bókstaflega hjá sjálfum sér. Mohammad Shatnawi spyrnti boltanum nefnilega aftur fyrir sig og í sitt eigið mark. Ótrúlegt sjálfsmark hjá þessum 29 ára markverði sem hefur spilað með Al Faisaly frá 2008 og var því ekki að upplifa þetta derby-stress í fyrsta sinn. Það var ekki að hjálpa andlegu hliðinni hjá stuðningsmönnum Al Faisaly liðsins en liðið var þarna að spila sjöunda leikinn í röð án þess að ná að vinna.Hér fyrir neðan má sjá þetta furðulega sjálfsmark Mohammad Shatnawi.
Fótbolti Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Fótbolti Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Fótbolti Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Fótbolti Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Fótbolti Rashford mættur til Barcelona Fótbolti Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti Fleiri fréttir Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Treyja Shilton og medalía Pelé til sölu Man Utd reynir við Sesko en horfir einnig til Chelsea Víkingur mætir líklega Bröndby ef liðið kemst áfram Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Rashford mættur til Barcelona Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Kassi í Mosfellsbæinn West Ham sækir bakvörð frá föllnum Southampton-mönnum „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Vinna með lögreglunni eftir að Carter varð fyrir kynþáttaníð Búinn í læknisskoðun og ætti að ná Ameríkutúrnum Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Messi nú með fleiri mörk en Ronaldo Stefán Ingi með þrennu í fyrri hálfleik Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Ísak Snær opnaði markareikninginn hjá Lyngby Kolbeinn lagði upp sigurmarkið Frankfurt kann það betur en flest félög að græða pening á framherjum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Hetja Þjóðverja í gær hefur sigrast tvisvar á krabbameini Sjá meira