Græn Reykjavík Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2015 10:28 Mynd/Eiríkur Ingi
Helstu kennileiti Reykjavíkurborgar; Perlan, Hallgrímskirkja og Harpa eru nú græn vegna dags heilags Patreks, sem haldinn er hátíðlegur víða um heim á morgun. Ferðamálastofa Írlands hóf fyrir sex árum herferðina „Grænvæðing heimsins“, þar sem þekktar byggingar um allan heim eru gerðar grænar til að minna á daginn, sem er þjóðhátíðardagur Írlands. Þetta er í fyrsta sinn sem kennileiti hér á landi eru lýst upp með þessum hætti og eiga þau það sameiginlegt með Colosseum í Róm, Litlu hafmeyjunni í Kaupmannahöfn, Sacre Coeur í París, óperuhúsinu í Sydney, Skakka turninum í Písa og Kínamúrnum. Það hafa fleiri og fleiri byggingar víðs vegar um heiminn bæst við listann ár hvert en talið er að 70 milljónir manna fagni þessum degi um heim allan með því að klæðast grænu og í fjölmennum skrúðgöngum.“ „Það gleður okkur mjög að Ísland mun nú í fyrsta skipti taka þátt í „grænvæðingu heimsins“. Á þjóðhátíðardegi Írlands, degi heilags Patreks, munu þekktar byggingar á Íslandi verða grænar, eins og margar þekktar byggingar víða um veröld. Grænvæðingin gefur okkur tækifæri til að styrkja vináttusamband milli Íslands og Írlands og auka áhuga Íslendinga á Írlandi og á þeirri miklu arfleifð sem þar ríkir. Þetta samband mun nú styrkjast enn frekar þar sem WOW air mun nú hefja áætlunarflug í júní frá Íslandi til Dublin. Við hlökkum til að taka á móti Íslendingum á Írlandi þar sem þeir geta notið líflegrar höfuðborgar okkar, gert góð kaup í verslunum, séð náttúru Írlands og síðast en ekki síst, smakkað á okkar fræga dökka bjór,“ segir Aileen Hickey, framkvæmdastjóri ferðamálaráðs Írlands á Norðurlöndunum. Dagur heilags Patreks byrjaði sem þjóðhátíðardagur á Írlandi árið 1903 til að minnast heilags Patreks sem er þjóðardýrlingur Íra en hann er talinn hafa fest kristni í sessi þar í landi. Patrekur fæddist í Skotlandi árið 390 og hét í raun Maewyn Succat. Hann var af aðalsættum og þegar hann var 16 ára var honum rænt og gerður að þræl á Írlandi. Sagan segir að heilagur Patrekur hafi hrakið alla snáka frá Írlandi en líklegast eru engir snákar á Írlandi og hafa sennilega aldrei verið. Talið er að sagan sé aðeins táknræn fyrir það Patrekur batt enda á heiðnar venjur og kynnti kristni fyrir írsku þjóðinni.Hallgrímskirkja böðuð grænu.Mynd/Eiríkur IngiPerlan í írskum búningi.Mynd/Eiríkur Ingi
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Rúllar sér í grasinu og nær að slökkva í sér“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Sjá meira