„Þeim er sama þó þeim sé nauðgað í vegkantinum“ Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2015 10:28 Sagnfræðingurinn Saleh al-Saadoon. VÍsir/Getty
Arabískur sagnfræðingur sagði nýverið í sjónvarpsviðtali að konum í Bandaríkjunum og Evrópu væri sama þó þeim væri nauðgað. Þannig vildi hann verja það að konum sé bannað að keyra bíla í Sádi-Arabíu. Viðtalið var birt í síðasta mánuði af sjónvarpsstöð í Sádi-Arabíu. Á vef Huffington Post kemur fram að konum sem keyra í Sádi-Arabíu er meðal annars refsað með húðstrýkingu. „Konur riðu kameldýrum á árum áður, svo það er hægt að spyrja hvað komi í veg fyrir að þær keyri bíla,“ sagði sagnfræðingurinn samkvæmt þýðingu frá MEMRI samtökunum. Hann sagði Sádi-Arabíu búa við einstakt vandamál, sem væri fjarlægðir á milli borga. Ef bíll kvenna myndi bila á vegunum á milli borga væru þær auðveld skotmörk nauðgara. Stjórnandi þáttarins sagði þá að konur keyrðu í Bandaríkjunum, Evrópu og sumum löndum í Mið-Austurlöndum. „Þeim er sama þó þeim sé nauðgað í vegkantinum. Okkur er ekki sama,“ sagði sagnfræðingurinn Saleh al-Saadoon. Hinir tveir gestir þáttarins, sem og stjórnandanum, virtist brugðið við þessi orð og því fór sagnfræðingurinn aðra leið. Hann sagði að komið væri fram við konur í Sádi-Arabíu eins og drottningar með því að keyra þeim þangað sem þær vildu fara. Meðlimir fjölskyldna þeirra eða karlkyns bílstjórar keyra konur. Stjórnandi þáttarins spurði hann þó hvort að bílstjórar þeirra geti ekki alveg eins nauðgað þeim og hvort hann hefði áhyggjur af því. „Það er til lausn, en embættismenn og trúarleiðtogar landsins vilja ekki heyra það. Lausnin er að flytja inn erlendar konur til að keyra eiginkonur okkar.“ Við það fór þáttastjórnandinn að hlæja og spurði hvort honum væri alvara.
Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Sjá meira