Gerðu athugasemdir við dýravelferð á 340 býlum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. október 2015 12:33 Frá svínabúi á Íslandi. vísir/auðunn
Matvælastofnun (MAST) hefur sent frá sér tilkynningu vegna þess sem kom fram í tilkynningu frá Bændasamtökunum í gær. Þar var því haldið fram að á rúmlega 94 prósentum búa á Íslandi hafi MAST ekki gert athugasemdir vegna dýravelferðar. Var vísað í ársskýrslu stofnunarinnar en samkvæmt tilkynningu frá MAST var aðeins tilgreint í skýrslunni sá fjöldi býla þar sem gerðar voru alvarlegar athugasemdir. Það var gert á 47 búum sem gera 5,6 prósent af heildarfjölda skráðra búa. Alls voru athugasemdir varðandi dýravelferð gerðar á 340 býlum sem er 40 prósent af heildarfjölda skráðra búa. Tilkynningu MAST má sjá í heild sinni hér:Í tilkynningu frá Bændasamtökunum„Í ársskýrslu Matvælastofnunar 2014 þar sem fjallað er um eftirlit kemur fram að 832 bú í frumframleiðslu hafi verið heimsótt. Alvarlegar athugasemdir um dýravelferð voru gerðar við 47 bú eða 5,6%. Annarskonar alvarlegar athugasemdir voru gerðar við sjö bú til viðbótar. Á rúmlega 94% búa voru því ekki gerðar athugasemdir. Þó svo að hlutfall þeirra búa sem ekki voru gerðar athugasemdir við sé mjög hátt, er það alltaf óásættanlegt þegar að meðferð dýra er ekki fullnægjandi.“Leiðrétting frá Matvælastofnun:Fram hefur komið í tilkynningu frá Bændasamtökum Íslands þegar þeir vitna í ársskýrslu Matvælastofnunar og tilgreina að alvarlegar athugasemdir hafi verið gerðar við dýravelferð á 47 búum eða 5,6%. Í framhaldi draga Bændasamtökin þá ályktun að þá hafi ekki verið gerðar athugasemdir á rúmlega 94% búa. Þessi ályktun Bændasamtakanna er hinsvegar ekki rétt, því í ársskýrslu Matvælastofnunar var bara dregin fram sá fjöldi býla þar sem alvarlegar athugasemdir höfðu verið gerðar við dýravelferð, en ekki tilgreint hversu mörg býli hefðu fengið athugasemdir eða frávik. Hið rétta er að frávik hvað varðar dýravelferð voru skráð á um 40% búanna (340 býli) og þar af alvarleg frávik á 14% (47) af þeim, eða 5,6% af heildarfjölda skráðra búa.
Tengdar fréttir Bændasamtökin fordæma illa meðferð á dýrum Bændasamtök Íslands segja að innleiðing nýrra laga um velferð dýra sé mikil áskorun fyrir landbúnaðinn. 30. september 2015 18:08 Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira
Bændasamtökin fordæma illa meðferð á dýrum Bændasamtök Íslands segja að innleiðing nýrra laga um velferð dýra sé mikil áskorun fyrir landbúnaðinn. 30. september 2015 18:08