Myndhöggvarar brutu á rétti Ásmundar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 29. september 2015 14:39 Ásmundur Ásmundsson listamaður. Vísir/Ernir
Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík var óheimilt að miðla upplýsingum um nafn og fjárhæð skuldar Ásmundar Ásmundssonar myndhöggvara í fundargerð síðasta aðalfundar félagsins. Þetta er niðurstaðan í úrskurðar Persónuverndar. Ásmundi Ásmundssyni var vísað úr Myndhöggvarafélaginu, hér eftir nefnt MHFR, fyrr á þessu ári eftir leynilega atkvæðagreiðslu á aðalfundi félagsins í maí. Hann leigði vinnurými af félaginu en upplýsingar um skuldir hans gagnvart félaginu voru skráðar í fundargerð sem send var félagsmönnum eftir fyrrnefndan aðalfund. Að sögn Ásmundar voru upplýsingar á fundinum aðeins gefnar í formi heildarskuldastöðu félagsins. „En það sem kemur síðan fram í fundargerðinni, sem send var til allra félagsmanna að aðalfundinum afstöðnum, er í engu samhengi við það sem kom fram á fundinum, því að þar er upplýst um skuldastöðu undirritaðs upp á krónu og hann nafngreindur að auki,“ skrifar Ásmundur í svari til Persónuverndar. Ásmundur kærði meðferð MHFR á persónuupplýsingum um hann til Persónuverndar.„Ofsóknir og einelti“ MHFR taldi eðlilegt að upplýsa félagsmenn um útistandandi kröfu á hendur Ásmundi þar sem félagið ber sjálft ábyrgð á leigusamningi um húsnæðið gagnvart Reykjavíkurborg. Persónuvernd hafnar þessum rökum.Sjá einnig: Æfareiðir myndhöggvarar munnhöggvastSkemmdarverk eða listaverk?Vísir/Jón„Engu að síður liggur einnig ljóst fyrir að hver félagsmaður er ekki ábyrgur persónulega fyrir leigugreiðslum til Reykjavíkurborgar, heldur framleigir MHFR vinnustofur sínar til félagsmanna á grundvelli leigusamnings. Verði uppi ágreiningur um lögmæti slíks leigusamnings, greiðslur vegna hans eða úrsögn félagsmanna úr félagi á grundvelli ákvæðis í leigusamningi leiðir það engu að síður ekki sjálfkrafa til þess að allir félagsmenn hafi lögmæta hagsmuni af því að fá upplýsingar um þær deilur á meðan á þeim stendur, til dæmis um nafn skuldara eða þá upphæð sem viðkomandi skuldar félaginu þann dag.“ Ásmundi var vísað úr félaginu á aðalfundi eins og fyrr segir ásamt Hannesi Lárussyni en borin var upp nafnlaus tillaga á fundinum sem félagsmenn samþykktu með átta atkvæðum gegn sjö. Ellefu skiluðu auðu. „Þetta eru ofsóknir og einelti sem er algjörlega farið úr böndunum,“ sagði Ásmundur í samtali við Fréttablaðið fyrr í sumar en myndlistamennirnir tveir hafa verið gagnrýndir af einhverjum félagsmanna fyrir ósæmilega hegðun og fyrir tjón á munum félagsins.Atkvæðagreiðslu um frávikningu ekki getið í fundarboðun „Þetta með ofbeldið og þjófnaðinn eru bara dylgjur og til skammar fyrir félag sem nýtur opinberra styrkja frá borginni,“ segir Ásmundur, en í tillögunni segir að Ásmundur hafi ekki greitt leigu fyrir vinnuaðstöðu sem hann leigir af félaginu og sé því um þjófnað að ræða. Þá segir í tillögunni að Ásmundur og Hannes hafi rústað kaffistofu félagsmanna og lagt hana undir sig með ofbeldi. Ásmundur hefur leitað lögfræðilegs álit á lögmæti fundarins og niðurstaða þess var að fundurinn hefði verið ólöglegur. Þá hafa sextán félagsmenn sent kröfu til stjórnar MHFR þar sem farið er fram á að samþykktir aðalfundar verði ógildar og nýr fundur boðaður. Þá hefur Hulda Hákon myndlistarmaður nefnt það að sér þyki óeðlilegt að jafn stór ákvörðun og þessi hafi ekki verið nefnd í fundarboði.
Tengdar fréttir Æfareiðir myndhöggvarar munnhöggvast Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson myndlistarmenn voru reknir úr Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur. Ásmundur segir um ofsóknir og einelti að ræða. Formaður félagsins segir þá rekna á löglegan hátt. 13. júlí 2015 07:00 Myndhöggvurum tekst ekki að höggva á hnútinn Hannes Lárusson og Ásmundur Ásmundsson myndlistarmenn voru reknir úr Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur eftir að tillaga barst frá Kristni E. Hrafnssyni myndlistarmanni. 14. júlí 2015 07:00 „Það má gagnrýna Framsóknarflokkinn, en ekki þá sem gagnrýna Framsóknarflokkinn“ „Þetta var hrein og klár ritskoðun sem er mjög alvarleg valdbeiting,” útskýrir Ásmundur Ásmundsson listamaður. 4. júlí 2015 10:00 Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Sjá meira
Æfareiðir myndhöggvarar munnhöggvast Ásmundur Ásmundsson og Hannes Lárusson myndlistarmenn voru reknir úr Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur. Ásmundur segir um ofsóknir og einelti að ræða. Formaður félagsins segir þá rekna á löglegan hátt. 13. júlí 2015 07:00
Myndhöggvurum tekst ekki að höggva á hnútinn Hannes Lárusson og Ásmundur Ásmundsson myndlistarmenn voru reknir úr Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur eftir að tillaga barst frá Kristni E. Hrafnssyni myndlistarmanni. 14. júlí 2015 07:00
„Það má gagnrýna Framsóknarflokkinn, en ekki þá sem gagnrýna Framsóknarflokkinn“ „Þetta var hrein og klár ritskoðun sem er mjög alvarleg valdbeiting,” útskýrir Ásmundur Ásmundsson listamaður. 4. júlí 2015 10:00