Grunaður um kynferðisbrot gegn barnabarni: Interpol lýsir eftir manninum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. júlí 2015 16:37 Yves Francois hefur verið eftirlýstur frá því hann lét sig hverfa í mars 2014. vísir
Interpol hefur lýst eftir Yves Francois, haítískum karlmanni á sjötugsaldri, fyrir hönd íslenskra yfirvalda. Francois er grunaður um að hafa brotið gegn barnabarni sínu sem hann kom með hingað til lands í kjölfar jarðskjálftans í Haítí árið 2012. Hann er sagður hafa flúið land í miðri rannsókn á meintum brotum hans. Stundin greinir frá málinu. Francois kom til Íslands ásamt eiginkonu sinni, dóttur og tveimur barnabörnum. Hann var grunaður um að hafa brotið gegn öðru barnabarninu, sex ára gamalli stúlku. Við komuna framvísaði afinn gögnum þar sem tekið var fram að hann færi með forsjá telpunnar þar sem móðir hennar hefði látist í hamförunum í Haítí. Grunur lék á að Francois hefði flutt stúlkuna til landsins með fölsuðum skilríkjum og ásakanir voru uppi um að stúlkan væri fórnarlamb mansals, en fallið var frá þeim ásökunum. Hæstiréttur staðfesti svo í janúar 2014 að stúlkan yrði vistuð utan heimilis síns á meðan ásakanir um vanrækslu væru til rannsóknar. Þuríður Halldórsdóttir, lögmaður Francois, sagði í samtali við Vísi að ásakanirnar væru „algjörlega úr lausu lofti gripnar“.Sjá einnig: Barnsgrátur barst frá íbúðinni á öllum tímum sólarhrings Francois sagði í samtali við DV í mars á síðasta ári að Barnavernd Reykjavíkur hefði rænt barnabarni hans. „Stelpan er hjartað mitt. Hún er dóttir dóttur minnar sem lést í jarðskjálftanum. Ég var með fullt forræði við komuna til Íslands og alla löglega pappíra því til staðfestingar. Ég hefði aldrei komið með hana hingað ef ég hefði vitað að íslenska ríkið myndi taka hana frá mér,“ sagði hann í viðtalinu.RÚV greindi svo frá því nokkrum dögum síðar að Francois hefði verið farinn úr landi þegar skýrslutaka yfir honum átti að fara fram. Lögmaður hans hafi óskað eftir því að yfirheyrslum yrði frestað svo hægt væri að útvega frönskumælandi túlk. Þegar því hafi verið komið í kring og skýrslutakan átti að hefjast var enginn afi mættur, enda farinn úr landi. Kristján Ingi Kristjánsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við Vísi að lýst hafi verið eftir manninum í kjölfarið. Hann hafi því verið á skrá Interpol frá því í mars 2014. Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Formaður Félags fósturforeldra tjáði sig um málið.
Tengdar fréttir Barnsgrátur barst frá íbúðinni á öllum tímum sólarhrings Fjögur önnur börn eru til heimilis á sama stað og sex ára gömul telpa sem Hæstiréttur úrskurðaði í gær að skyldi dvelja hjá fósturfjölskyldu á meðan alvarlegar ásakanir um vanrækslu eru til rannsóknar. Grunur leikur á að telpan hafi verið fórnarlamb mansals 26. janúar 2014 19:15 Grunaður um að misnota barnabarn sitt Karlmaður frá Haíti, sem kom hingað til lands árið 2012 eftir mannskæðan jarðskjálfta í heimalandi sínu, er grunaður um að hafa beitt sex ára dótturdóttur sína kynferðislegu ofbeldi. 14. mars 2014 13:12 „Algjörlega úr lausu lofti gripið" „Ég myndi telja að það sé verið að færa íslenskri fósturfjölskyldu barn á silfurfati," segir lögmaður mannsins sem sætir nú athugunar af hálfu Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Hún segir afleitt að tala um að umbjóðandi sinn sé grunaður um mansal. 26. janúar 2014 16:24 Fjögur önnur börn búa á heimili meints mansalsfórnarlambs Fjögur önnur börn eru til heimilis á sama stað og sex ára gömul telpa sem Hæstiréttur úrskurðaði í gær að skyldi dvelja hjá fósturfjölskyldu á meðan alvarlegar ásakanir um vanrækslu eru til rannsóknar. 26. janúar 2014 18:00 Barn tekið af heimili sínu vegna gruns um ofbeldi og mansal Sex ára, frönskumælandi stúlka er nú vistuð utan heimilis síns á meðan alvarlegar ásakanir gegn forsjáraðila hennar eru kannaðar. Til skoðunar er hvort að stúlkan sé fórnarlamb mansals. 25. janúar 2014 19:11 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Barnsgrátur barst frá íbúðinni á öllum tímum sólarhrings Fjögur önnur börn eru til heimilis á sama stað og sex ára gömul telpa sem Hæstiréttur úrskurðaði í gær að skyldi dvelja hjá fósturfjölskyldu á meðan alvarlegar ásakanir um vanrækslu eru til rannsóknar. Grunur leikur á að telpan hafi verið fórnarlamb mansals 26. janúar 2014 19:15
Grunaður um að misnota barnabarn sitt Karlmaður frá Haíti, sem kom hingað til lands árið 2012 eftir mannskæðan jarðskjálfta í heimalandi sínu, er grunaður um að hafa beitt sex ára dótturdóttur sína kynferðislegu ofbeldi. 14. mars 2014 13:12
„Algjörlega úr lausu lofti gripið" „Ég myndi telja að það sé verið að færa íslenskri fósturfjölskyldu barn á silfurfati," segir lögmaður mannsins sem sætir nú athugunar af hálfu Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Hún segir afleitt að tala um að umbjóðandi sinn sé grunaður um mansal. 26. janúar 2014 16:24
Fjögur önnur börn búa á heimili meints mansalsfórnarlambs Fjögur önnur börn eru til heimilis á sama stað og sex ára gömul telpa sem Hæstiréttur úrskurðaði í gær að skyldi dvelja hjá fósturfjölskyldu á meðan alvarlegar ásakanir um vanrækslu eru til rannsóknar. 26. janúar 2014 18:00
Barn tekið af heimili sínu vegna gruns um ofbeldi og mansal Sex ára, frönskumælandi stúlka er nú vistuð utan heimilis síns á meðan alvarlegar ásakanir gegn forsjáraðila hennar eru kannaðar. Til skoðunar er hvort að stúlkan sé fórnarlamb mansals. 25. janúar 2014 19:11