Sagðist ætla að drepa forseta fulltrúadeildar Bandaríkjanna Samúel Karl Ólason skrifar 14. janúar 2015 14:20 John Boehner, leiðtogi meirihluta Repúblikana á þingi í Bandaríkjunum. Vísir/AFP
Barþjónninn Michael Hoyt, hefur verið ákærður fyrir að hóta að myrða John Boehner, foreseta fulltrúadeildar Bandaríkjanna og leiðtoga meirhluta Repúblikana. Hoyt hefur margoft afgreitt Boehner og segir hann vera dónalegan. Hoyt hefur átt við geðræn vandamál að stríða og er hættur að taka lyfin sín, samkvæmt Sky News. Hann var rekinn úr starfi sínu sem barþjónn í sveitaklúbbi í Ohio þar sem Beohner er tíður gestur. Snemma á nýju ári, um viku eftir að hann var rekinn, hringdi Hoyt í lögregluna og kenndi hann Boehner um að hann hefði misst starfið. Hann sagðist hafa heyrt raddir frá bílnum sínum, sem sögðu honum að Boehner væri illur. Hann sagði lögregluþjónum einnig að Boehner væri ábyrgur fyrir ebóluveiruna. Í ákærunni segir að Hoyt sé sannfærður um að Boehner sé djöfullinn og að hann sjálfur sé Jesús Kristur. Hann mun hafa tilkynnt lögreglunni að hann ætti byssu og að hann ætlaði að skjóta Boehner. Þá sagði hann einnig að það væri mjög auðvelt að eitra fyrir honum. Þar að auki sendi hann eiginkonu Boehner tölvupóst þar sem hann heimtaði fund með honum og öðrum þingmanni. Í póstinum stóð: „Ef ég hefði hug á að meiða Boehner, hefði ég getað eitrað fyrir honum margoft.“ Hoyt er nú á geðdeidl, en Boehner sagði lögreglu að hann myndi ekki eftir því að hafa átt í nokkurs konar orðaskiptum við barþjóninn.
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Fleiri fréttir Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Sjá meira