Spennan magnast í Spennistöðinni Garðar Örn Úlfarsson skrifar 26. september 2014 07:00 Eftir áralanga vinnu íbúasamtakanna, foreldrafélagsins, frístundamiðstöðvarinnar, félagsmiðstöðvarinnar, unglinganna, skólans og borgarinnar hillir í að dyrum hverfismiðstöðvarinnar verði upp lokið. Fréttablaðið/Ernir „
Unglingarnir okkar bíða ofboðslega spenntir og hlakka til að fá góða aðstöðu til þess að hittast,“ segir Soffía Pálsdóttir hjá frístundasviði Reykjavíkurborgar sem um mánaðamótin tekur við lyklavöldum í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla. Reykjavíkurborg keypti á árinu 2012 gamla spennistöðvarhúsið sem Orkuveitan hafði þá um langa hríð notað sem geymslu. Soffía segir fulltrúa margra hópa í hverfinu og frá borginni hafa unnið að stofnun félags- og menningarmiðstöðvar sem nú verði að veruleika. „Húsnæðið verður notað á daginn fyrir skólastarf og á eftirmiðdaginn og kvöldin ákveðinn hluta vikunnar fyrir félagsmiðstöðvarstarf fyrir börn og unglinga í hverfinu. Utan þess þá verður þetta miðstöð fyrir íbúana, foreldrafélagið og fleiri aðila til þess að geta verið með fundi og einhvers konar samkomur,“ segir Soffía.Soffía Pálsdóttir.Unnið hefur verið að standsetningu Spennistöðvarinnar. Stærsti hluti byggingarinnar er þó enn einn geimur og þar er hátt til lofts og vítt til veggja. „Í framtíðinni þegar við erum komin þarna inn ætlum við að sjá hvort við viljum búa til einhverja millihæð og hólfa þetta meira niður. Hugsunin er svolítið sú að íbúarnir og börnin og unglingarnir fái að þróa þetta og móta. Það er það sem er kannski skemmtilegt við þetta konsept og þannig varð þessi hugmynd til; hún kom frá grasrótinni,“ segir Soffía. Ekki er enn ljóst hvenær dyrum Spennistöðvarinnar verður lokið upp fyrir almenning. „Við þurfum smá tíma til að koma öllu í stand. Svo munum við halda flotta hverfishátíð með hverfisbúum og fagna þessum áfanga. Ætlunin er að nýta þetta til gleði fyrir hverfisbúa,“ segir Soffía Pálsdóttir.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira