Hollendingar hefndu ófaranna og gott betur | Myndir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. júní 2014 18:16 Vísir/Getty
Titilvörnin byrjaði skelfilega hjá Spánverjum sem voru kjöldregnir af Hollendingum, 5-1, í fyrsta leik B-riðils. Þessi lið mættust í úrslitaleiknum fyrir fjórum árum síðan en fáir áttu von á því að Hollendingar, með talsvert breytt lið, ættu mikið roð í ógnarsterkt lið Spánverja. Spánn vann téðan úrslitaleik, 1-0, með marki Andres Iniesta í uppbótartíma en óhætt er að segja að Hollendingar hafi náð að hefna þeirra ófara í kvöld. Þeir spænsku byrjuðu þó betur og komust yfir eftir umdeilda vítaspyrnu sem Diego Costa fiskaði um miðjan fyrri hálfleikinn. Xabi Alonso skoraði úr henni af öryggi. En undir lok fyrri hálfleiksins átti Daley Blind magnaða sendingu frá miðlínu inn í teig Spánverja þar sem Robin van Persie tók hann á lofti og skallaði yfir Iker Casillas, markvörð og landsliðsfyrirliða Spánverja. Mögnuð tilþrif hjá van Persie sem skutlaði sér á eftir boltanum. Síðari hálfleikur var svo eign Hollendinga frá upphafi til enda. Veislan byrjaði almennilega á 53. mínútu þegar Arjen Robben skoraði eftir aðra stoðsendingu Blind. Stefan De Vrij skoraði svo með skalla af stuttu færi á 64. mínútu og Holland var komið 3-1 yfir. Casillas gerði svo skelfileg mistök þegar hann nánast afhenti van Persie boltann á silfurfati og eftirleikurinn var auðveldur fyrir þann síðarnefnda.Arjen Robben innsiglaði svo sigurinn með öðru marki sínu á 80. mínútu og 5-1 sigur Hollands var staðreynd. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir úr leiknum.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti „Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Fótbolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír Íslenski boltinn Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ „Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit „Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Slagsmál í Íslendingaslag í Svíþjóð „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Sjá meira