Lífið

Sýnishorn úr nýja Modern Family-þættinum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tímaritið People birtir glænýtt sýnishorn úr nýjasta þætti Modern Family á heimasíðu sinni.

Hrekkjavökuþema er í þættinum og sýnishornið er bæði fyndið og ógnvekjandi á sama tíma.

Claire, sem leikin er af Julie Bowen, tekur að sér að skreyta allt hátt og lágt en eins og algengt er hjá Dunphy-fjölskyldunni fer ekkert eftir áætlun. Luke sofnar, Alex vill meiri ábyrgð og Haley er búin að breyta búningnum sínum til að gera hann kynþokkafyllri.

Þátturinn, sem ber heitið Halloween 3: AwesomeLand, verður sýndur á sjónvarpsstöðinni ABC á miðvikudagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.