Kallar eftir yfirvegaðri umræðu Samúel Karl Ólason skrifar 13. ágúst 2014 16:30 Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. Vísir/Valgarður „
Dapurlegt er að fylgjast með umræðu fulltrúa meirihluta fjárlaganefndar í kjölfar birtingar árshlutauppgjörs Fjársýslu ríkisins um fjárreiður ríkissjóðs,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Hún segir að áður en skýringa á meintum framúrkeyrslum tiltekinna stofnana hafi verið leitað hjá viðkomandi ráðuneytum, sé talið farið að berast að mögulegum breytingum á starfsmannalögum. Svo auðveldara verði að víkja fólki úr starfi til að refsa þeim. „Einn þingmaður meirihlutans á þingi gekk svo langt að leggja til að forstöðumenn stofnana finni sér nýtt starf.“Umræðan mátt vera yfirvegaðri Í tilkynningu á vef BSRB segir hún að umræðan hefði mátt vera yfirvegaðri enda hafi ekki verið nærri eins mikil ástæða til upphlaups þegar málið var skoðað betur. „Þegar fjárlaganefnd hafði svo fyrir því að spyrjast frekar fyrir um meintar framúrkeyrslur fjárheimilda hafa í flestum tilfellum fengist eðlilegar skýringar á því hvers vegna tölurnar birtast með þeim hætti sem þær gera í þessu árshlutauppgjöri.“ Í kjölfarið hefur formaður fjárlaganefndar sagt að staðan sé því víða ekki eins slæ og árshlutauppgjörið segi til um. „Það hefur samt ekki dregið úr þeim ofsa sem einkennt hefur umræður formannsins um störf opinberra starfsmanna og vilja hennar til að minnka starfsöryggi þeirra. Í málflutningi sínum hefur formaður fjárlaganefndar ítrekað gerst sek um alls kyns rangfærslur sem eiga ekki við nein rök að styðjast.“ Þar bendir Elín á áminningarferli ríkisstarfsmanna auk þess að því hafi verið haldið fram að ríkisstarfsmenn séu æviráðnir ogo því sé ómögulegt að reka þá úr starfi.Opinbert starfsfólk betra skilið „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar fram til þessa hafa heldur betur sýnt fram á annað og því veit formaður fjárlaganefndar, sem auk þess er löglærð, betur. Nema að hún sé vísvitandi að halda öðru fram en því sem hún veit til að afla stuðnings við tillögur sínar um að skerða réttindi opinberra starfsmanna, sem að mínum dómi væri talsvert alvarlegra en hreint þekkingarleysi,“ segir Elín Björg. Hún segir ennfremur að margar stofnanir hafi þurft að skera mikið niður á yfirstandandi fjárlaga ári og meðal annars þurft að segja upp starfsfólki. Á sama tíma hafi verkefnum stofnana ekki fækkað og raunar hafi þau víða aukist. „Starfsfólk hins opinbera – sem sinnir velferðarmálum, veitir heilbrigðis- og umönnunarþjónustu, sinnir öryggismálum o.s.frv. – hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf á síðustu árum á sama tíma og stöðugt hefur verið vegið að starfsheiðri þeirra. Þetta sama fólk hefur þrátt fyrir illt umtal, stöðugan niðurskurð og uppsagnir samstarfsmanna náð að sinna sínum verkefnum og gert það vel. Þetta starfsfólk á betur skilið en þessar köldu kveðjur.“
Tengdar fréttir Uppgjörinu er ekki lokið Sérstakur saksóknari segir að það eigi að taka fjárlög og fjárheimildir alvarlega. Embættið er komið 120 milljónum króna fram úr heimildum. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands kallar eftir ábyrgð ríkisstjórnar og Alþingis. 12. ágúst 2014 00:01 Vigdís segir fyrri stjórn hafa forgangsraðað gæluverkefnum Vigdís Hauksdóttir segir fyrri ríkisstjórn hafa skorið niður um 11 milljarð til heilbrigðismálaen á sama tíma sett fjármuni í gæluverkefni. 12. ágúst 2014 13:48 Framúrkeyrsla stofnana vonbrigði Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir ríkisstjórnina enn stefna að hallalausum fjárlögum fyrir árið. 11. ágúst 2014 08:30 Landspítalinn hundruð milljóna fram úr fjárlögum Varaformaður fjárlaganefndar segir það ekki ógna áætlunum stjórnvalda um hallalaus fjárlög 8. ágúst 2014 20:00 Sjö milljarða halli hjá tólf ríkisstofnunum Rúmlega tugur ríkisstofnana hefur farið alls sjö milljarða framyfir leyfilega fjárveitingu á fyrri helmingi ársins. Fjárlaganefnd mun krefjast skýringa á þessu eftir helgi. 10. ágúst 2014 18:53 Enginn afsláttur gefinn á hallalausum fjárlögum „Það er orðið tímabært að það sé slegið í borðið og þetta munstur verði rofið. Þetta verður ekki liðið lengur því það er erfitt að reka mörg ríki í ríkinu,“ segir Vigdís Hauksdóttir. 12. ágúst 2014 10:36 Spyr hvort forstöðumenn geti ekki fundið sér annað starf "Spyrja þá hvort þeir geti ekki fundið sér annað starf sem þeir ráða við,“ segir Pétur Blöndal. 11. ágúst 2014 14:15 Agi og óvinsælar ákvarðanir Það lofar góðu hversu fast fjárlaganefnd Alþingis virðist ætla að taka á eyðslu ríkisstofnana umfram fjárlög, sem hefur verið í fréttum undanfarna daga. 12. ágúst 2014 06:00 Ótímabært að útiloka stuðning við Landsspítalann Ekki er tímabært að útiloka aukinn stuðning við stofnanir eins og Landspítalann sem mun að óbreyttu fara fram úr fjárheimildum um nokkur hundruð milljónir. Þetta segir Oddný G. Harðardóttir sem situr í fjárlaganefnd Alþingis. Guðlaugur Þór Þórðarsson, varaformaður fjárlaganefndar aftók með öllu í gær að því að einhver slaki yrði gagnvart einstökum ríkisstofnunum. 9. ágúst 2014 18:46 Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Þau skipa lista Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra Fyrirhugaðar aðgerðir gegn offitu harðlega gagnrýndar Sjá meira
Uppgjörinu er ekki lokið Sérstakur saksóknari segir að það eigi að taka fjárlög og fjárheimildir alvarlega. Embættið er komið 120 milljónum króna fram úr heimildum. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands kallar eftir ábyrgð ríkisstjórnar og Alþingis. 12. ágúst 2014 00:01
Vigdís segir fyrri stjórn hafa forgangsraðað gæluverkefnum Vigdís Hauksdóttir segir fyrri ríkisstjórn hafa skorið niður um 11 milljarð til heilbrigðismálaen á sama tíma sett fjármuni í gæluverkefni. 12. ágúst 2014 13:48
Framúrkeyrsla stofnana vonbrigði Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir ríkisstjórnina enn stefna að hallalausum fjárlögum fyrir árið. 11. ágúst 2014 08:30
Landspítalinn hundruð milljóna fram úr fjárlögum Varaformaður fjárlaganefndar segir það ekki ógna áætlunum stjórnvalda um hallalaus fjárlög 8. ágúst 2014 20:00
Sjö milljarða halli hjá tólf ríkisstofnunum Rúmlega tugur ríkisstofnana hefur farið alls sjö milljarða framyfir leyfilega fjárveitingu á fyrri helmingi ársins. Fjárlaganefnd mun krefjast skýringa á þessu eftir helgi. 10. ágúst 2014 18:53
Enginn afsláttur gefinn á hallalausum fjárlögum „Það er orðið tímabært að það sé slegið í borðið og þetta munstur verði rofið. Þetta verður ekki liðið lengur því það er erfitt að reka mörg ríki í ríkinu,“ segir Vigdís Hauksdóttir. 12. ágúst 2014 10:36
Spyr hvort forstöðumenn geti ekki fundið sér annað starf "Spyrja þá hvort þeir geti ekki fundið sér annað starf sem þeir ráða við,“ segir Pétur Blöndal. 11. ágúst 2014 14:15
Agi og óvinsælar ákvarðanir Það lofar góðu hversu fast fjárlaganefnd Alþingis virðist ætla að taka á eyðslu ríkisstofnana umfram fjárlög, sem hefur verið í fréttum undanfarna daga. 12. ágúst 2014 06:00
Ótímabært að útiloka stuðning við Landsspítalann Ekki er tímabært að útiloka aukinn stuðning við stofnanir eins og Landspítalann sem mun að óbreyttu fara fram úr fjárheimildum um nokkur hundruð milljónir. Þetta segir Oddný G. Harðardóttir sem situr í fjárlaganefnd Alþingis. Guðlaugur Þór Þórðarsson, varaformaður fjárlaganefndar aftók með öllu í gær að því að einhver slaki yrði gagnvart einstökum ríkisstofnunum. 9. ágúst 2014 18:46