Uppgjörinu er ekki lokið Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 12. ágúst 2014 00:01 Embætti Sérstaks saksóknara er komið fram úr fjárheimildum í fyrsta sinn. Sérstakur saksóknari segir að enn sé rannsókn nokkuð margra mála ólokið. Vísir/Vilhelm „
Það ber að taka alvarlega allt sem snýr að fjárheimildum og fjárlögum. Embætti Sérstaks saksóknara hefur ekki áður farið fram úr fjárheimildum,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Samkvæmt endurskoðuðum útreikningum var embættið komið 120 milljónum króna fram úr heimildum á fyrrihluta ársins. Ólafur Þór segir að embættið hafi átt 140 milljóna króna afgang frá síðasta ári og að minnsta kosti hluti þeirrar fjárhæðar sé inni í útreikningum. Hann segir ljóst að embættið hafi farið fram úr heimildum og ein af skýringunum sé sú að rannsókn nokkurs fjölda mála sem tengjast efnahagshruninu sé enn ólokið. Ólafur segir að embættinu hafi verði settur ákveðinn fjárhagsrammi til fjögurra ára á minnisblaði árið 2010. Miðað við þær forsendur sem þá var lagt upp með hafi embættið ekki farið fram úr þeim áætlunum.Ólafur Þór HaukssonÓlafur segir að á þessu ári eigi að fara fram fjárhagslegt uppgjör embættisins. Því eins og komi fram í athugasemdum með fjárlögum þessa árs sé stefnt að því að innanríkisráðuneytið vinni með embætti Sérstaks saksóknara að fjárhagslegu uppgjöri embættisins, með það að markmiði að ljúka þeim rannsóknum og verkefnum sem Sérstakur saksóknari hefur með höndum. „Þessu uppgjöri er hins vegar ekki lokið og því liggur ekki ljóst fyrir hver endanleg niðurstaða verður,“ segir Ólafur Þór en bætir við að fyrirsjáanlegt sé að útgjöld á síðari helmingi ársins verði eitthvað lægri en á fyrri hluta þess. Það stefnir í að Sjúkratryggingar Íslands fari þremur milljörðum króna fram úr fjárheimildum á þessu ári.STeingrímur ARi ARasonSteingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, hefur bent á ábyrgð stjórnvalda á framúrkeyrslu stofnunarinnar. Stofnunin hafi í byrjun árs verið búin að gera þeim grein fyrir stöðunni. Hann segir að stjórnvöld geti aðhafst tvennt í málefnum stofnunarinnar, annars vegar að auka fjárframlög til hennar og hins vegar að skerða réttindi borgaranna hvað varðar greiðslur. „Þetta eru réttindi sem ákveðin eru af stjórnvöldum þannig að það er ríkisstjórnar og Alþingis að taka ákvörðun um hvort þau réttindi verða skert, það er ekki Sjúkratrygginga að taka slíka ákvörðun,“ segir Steingrímur Ari. Steingrímur Ari segir nokkra þætti skýra framúrkeyrsluna. Ekki hafi verið gripið til aðgerða vegna síaukins lyfjakostnaðar svo sem vegna ofvirknilyfja. Stofnunin hafi ekki fengið næg fjárframlög til að mæta samningi sem gerður var við tannlækna um barnatannlækningar. Það sem skýri hins vegar framúrkeyrsluna að stærstum hluta sé samningur við sérfræðilækna sem gerður var um áramót. Hann kosti Sjúkratryggingar um milljarð króna á þessu ári án þess að stofnunin hafi fengið auknar tekjur á móti.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira