KK í uppáhaldi Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 6. desember 2014 12:00 Ellen Á aðventunni leitar hugur Ellenar til þeirra sem minna mega sín og leitar hún leiða til að leggja sitt af mörkum til að létta meðborgurunum lífið. Stefán
Það hafa verið stífar æfingar undanfarnar vikur hjá mér en eftir að tónleikarnir með Borgardætrum og okkur KK fara í gang kemst meiri rútína á,“ segir Ellen Kristjánsdóttir, tónlistarkona. Hún kemur fram með bróður sínum, KK, á rúmlega tíu tónleikum og einnig með Borgardætrum. „Jólatónleikarnir hjá Borgardætrum hafa verið haldnir árlega frá því við gáfum út plötu fyrir fjórtán árum og ég og KK gerðum jóladisk árið 2005 sem við fylgdum eftir og höfum haldið áfram með jólatónleika síðan þá. Þetta gengur vel hjá okkur og er gaman, við erum alveg ótrúlega heppin.“ Þar sem Ellen hefur nóg að gera í desember segist hún hafa lært að skipuleggja sig vel. Hún bakar með barnabörnunum í nóvember og segir alla fjölskylduna vera orðna vana því að hún sé upptekin á þessum tíma. „Barnabörnin mín grínuðust einmitt með það um daginn að ég væri bara búin að gleyma þeim en ég er svo rík að eiga fjögur börn, fjögur barnabörn og eina stjúpdótturdóttur. Elsta dóttir mín, Sigríður, á þrjú þeirra, miðstelpan mín, Elísabet á einn strák og svo á Elín eina stjúpdóttur.“Dásamlegt að vinna með börnunum Fjölskylda Ellenar er, eins og flestir vita, mikil tónlistarfjölskylda en öll börn þeirra Ellenar og Eyþórs Gunnarssonar tónlistarmanns hafa lagt tónlistina fyrir sig. „Allar stelpurnar mínar, Sigga, Elísabet og Elín, eru saman í hljómsveitinni Sísí Ey. Þær hafa verið að ferðast um erlendis og eru svolítið að slá í gegn þar. Strákurinn okkar, hann Eyþór Ingi, er í Tónlistarskóla FÍH og er á fullu að semja og svo er Eyþór með mér í Borgardætrum og í Baggalút.“ Verandi í tónlistarbransanum og þekkja hann því og hve harður hann getur verið reyndu þau Ellen og Eyþór að beina börnum sínum frá því að leggja tónlistina fyrir sig. „Samt sem áður finnst okkur það dásamlegt að þau séu í þessu. Þessi bransi er auðvitað oft upp og niður en við erum vön því og börnin hafa alist upp við það og við getum í raun ekki kvartað. Við elskum það sem við gerum og þá er ekki hægt að biðja um meira,“ segir Ellen og brosir. Hún bætir því við að fjölskylduböndin eflist í gegnum tónlistina og að það sé gaman fyrir hana að fá að vera með börnunum sínum í henni. „Við komum sjaldan fram saman en við mæðgur vorum saman með tónleika á dögunum og í febrúar ætlum við að vera með stóra fjölskyldutónleika í Salnum þar sem við ætlum að að blanda alls konar tónlist saman.“Best að syngja með bróðurnum Ellen skaut upp á stjörnuhimininn árið 1979 þegar hún söng lagið Einhvers staðar einhvern tímann aftur með Mannakornum. Hún hefur sungið með fjölda tónlistarmanna en segir þó KK, bróður sinn, vera uppáhaldstónlistarmanninn sinn. „Að sjálfsögðu er KK uppáhalds en fyrstan ber auðvitað að nefna manninn minn, hann er algjör snillingur og það eru forréttindi að fá að vinna með honum. Svo er mjög gott að vinna með Borgardætrum og Mannakornum, Maggi Eiríks og Pálmi Gunnars eru eins og bræður mínir. Svo eru auðvitað miklu fleiri og ég gleymi örugglega að nefna einhvern sem er frábær. Ég hef verið svo heppin að fá að vinna með alveg ótrúlega skemmtilegu fólki.“Verkefni í pípunum Ellen hefur gert meira af því undanfarin ár að semja tónlist og stefnir á að gera enn meira af því á næsta ári. „Ég er með smá verkefni í pípunum, jafnvel plötu. Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt og eitthvað sem mig langar virkilega að gera og hef trú á.“ Eyþór, eiginmaður Ellenar, tekur þátt í þessu verkefni með henni en þau höfðu ekki unnið mikið saman fyrr en þau gerðu plötuna Sálmar árið 2004. Aðspurð segir Ellen þau stundum verða þreytt hvort á öðru þar sem þau búa og vinna saman. „Við erum bara eins og venjuleg hjón en okkur þykir svo vænt hvoru um annað og höfum sem betur fer þroskast og höfum verið lengi saman í þessum bransa,“ segir hún og hlær. Helgarnar hjá Ellen eru yfirleitt undirlagðar af vinnu en þegar hún fær frí finnst henni gaman að fá barnabörnin í heimsókn. „Oft höfum við kósíkvöld eða förum saman eitthvert út í náttúruna. Mér finnst gaman að fara á hestbak og þegar ég syng úti á landi nýti ég mér tækifærið þar sem eru hestaleigur og fer á bak. Í janúar fer Eyþór út að spila í heilan mánuð og þá ætla ég að kíkja í heimsókn til hans og við ætlum að fara saman til Parísar.“Jólin eiga að snúast um að hjálpa öðrum Jólin hjá fjölskyldunni eru hefðbundin en annríki aðventunnar verður lokið rétt fyrir aðfangadag. „Um hver jól ætla ég að hafa lítið tré en hef aldrei komist upp með það,“ segir Ellen og hlær. Hún bætir við að öll fjölskyldan verði saman heima hjá þeim Eyþóri á aðfangadagskvöld. „Það verður eflaust einhver hamagangur enda fjórir krakkar á aldrinum sex til tólf ára að taka upp gjafir.“ Á aðventunni leitar hugur Ellenar til þeirra sem minna mega sín og er hún að reyna að finna upp á einhverju til að gera til að létta þeim sem eiga erfitt lífið. „Ég mun auðvitað spila einhvers staðar þar sem það er vel þegið en mér finnst við hér á landi oft of gjörn á að kvarta þó við búum í raun í paradís miðað við önnur lönd. Þó margt megi betur fara hér ættum við samt að geta hjálpað þeim sem eiga virkilega erfitt og mér finnst að jólin eigi að snúast um það.“
Mest lesið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Tíska og hönnun Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Bíó og sjónvarp Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Fleiri fréttir „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Sjá meira