Aldrei gott að tapa Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2014 08:00 Lars Lagerbäck ræðir við fréttamenn í gær en með honum eru Guðmundur Hreiðarsson og Heimir Hallgrímsson. fréttablaðið/vilhelm
Landsliðshópur Íslands fyrir leikina gegn Belgíu og Tékklandi í næstu viku var tilkynntur í gær. Fátt kom á óvart í liðsvali þeirra Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar en einn nýliði er í hópnum – Hörður Björgvin Magnússon sem leikur með Cesena í ítölsku úrvalsdeildinni. Lagerbäck á sem kunnugt er langan feril að baki sem landsliðsþjálfari en segir að þetta sé í fyrsta sinn sem lið hans leiki æfingaleik svo skömmu fyrir mótsleik líkt og Ísland gerir nú. Strákarnir mæta Belgum í vináttulandsleik í Brussel á miðvikudag en Tékklandi í undankeppni EM 2016 fjórum dögum síðar. Sá leikur fer fram í Plzen og er toppleikur A-riðils í undankeppninni þar sem bæði lið eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. „Við munum ekki ákveða fyrr en eftir helgina hverjir spila gegn Belgíu. Það ræðst af ástandi leikmanna eftir leiki helgarinnar en hugmyndin er að gefa leikmönnum sem hafa lítið fengið að spila tækifæri í byrjunarliðinu og gera jafnvel 3-4 breytingar í hálfleik. En það er erfitt að meta það nú hver niðurstaðan verður,“ sagði Lagerbäck við Fréttablaðið í gær.Lærum mest að spila við góð lið Strákarnir eru á mikilli siglingu eftir sigrana þrjá í undankeppninni í haust og ekki síst glæstan 2-0 sigur á Hollandi á Laugardalsvellinum. Ljóst er að andstæðingurinn á miðvikudaginn verður ekki af lakari endanum en Belgía hefur á að skipa gríðarlega öflugum leikmannahópi en liðið er nú í fjórða sæti styrkleikalista FIFA og er þar næstefsta Evrópuþjóðin. „Ég tel að við lærum mest af því að spila við sterkar þjóðir,“ segir hann og kveðst ekki óttast afleiðingarnar þótt úrslitin í leiknum verði íslenska liðinu óhagstæð. „Það fer ef til vill fremur eftir frammistöðunni í leiknum heldur en niðurstöðunni. Neikvæð úrslit gætu þess vegna hvatt menn til dáða og fengið þá til að vilja sanna sig í næsta leik. Það er þó aldrei gott að tapa og sérstaklega ef það bitnar á einstökum leikmönnum. Það er heldur ekki gott að tapa með miklum mun en ég hef almennt ekki áhyggjur af því.“ Hann segir að þjálfararnir hafi ekki íhugað að taka með sér fleiri leikmenn til Belgíu til þess að gefa fleiri leikmönnum tækifæri til að sýna sig og sanna. „Mér finnst þessi blanda af 20 útileikmönnum og þremur markvörðum vera góð og henta æfingunum vel. Ef það eru fleiri leikmenn þarf að taka einhverja á séræfingar og annað slíkt. Ef allir leikmenn eru heilir, líkt og tilfellið er nú, er best að vera með 23 leikmenn í hópnum.“
Fótbolti Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Sjá meira