Erlent

Tíu þúsund manns gætu smitast á viku

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Börn lesa dreifibréf um varnir gegn ebólu.
Börn lesa dreifibréf um varnir gegn ebólu. fréttablaðið/AP
Innan tveggja mánaða gæti farið svo að tíu þúsund ný ebólusmit greinist í viku hverri, en til þessa hefur tíðnin verið í um þúsund tilfellum á viku.

Þetta segir Bruce Aylward, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO.

Hann skýrði jafnframt frá því að dánartíðni þeirra sem smitast mælist nú um 70 prósent, en til þessa hefur WHO metið það svo að dánartíðnin sé um eða innan við 50 prósent.

Á blaðamannafundi í Genf sagði Aylward að verði heilbrigðisráðstafanir í Afríku ekki hertar til muna og meira fé lagt í viðbrögð gegn sjúkdómnum, þá muni það kosta mörg mannslíf.

Jafnvel þótt faraldurinn haldist í svipuðum tölum og til þessa, þá muni heilbrigðisstarfsfólk í Afríkuríkjunum eiga í mestu vandræðum með að sinna þeim sem veikjast.

Alls hefur ebólufaraldurinn kostað 4.447 manns lífið á þessu ári, en alls hafa 8.914 manns smitast samkvæmt nýjustu tölum frá WHO. Nánast allir eru þeir íbúar í ríkjum vestanverðrar Afríku, flestir í Sierra Leone, Gíneu og Líberíu.

Aylward segir ekki miklar líkur á því að faraldurinn breiðist svo nokkru nemi út um heimsbyggðina alla: „Ég býst ekki við að þessi veira sé að fara neitt. Það er fylgst með öllum sem fara og veikt fólk verður ekkert á ferðinni.“

Hann segir mikið álag vera á heilbrigðisstarfsfólk og heilbrigðisstofnanir í Afríkuríkjunum, sem engan veginn hafa bolmagn til þess að takast á við vandann. Áherslan sé því fyrst og fremst á það að veita veikum meðferð.

„Það væri hræðilega siðlaust að segja að við ætlum bara að einangra fólk,“ segir hann, og tekur fram að helsta forgangsmálið nú sé að útdeila varnarbúnaði til almennings og koma upp einföldum heilsugæslustöðvum, þar sem hægt sé að veita lágmarksmeðferð.

Nokkrir sjúklingar hafa verið fluttir til Vesturlanda, þar sem sjúkrahús bjóða upp á mun fullkomnari meðferð. Sumir þeirra hafa náð sér, en tveir heilbrigðisstarfsmenn þar hafa smitast - annar á Spáni en hinn í Bandaríkjunum.

Spænska hjúkrunarkonan Teresa Romero er sögð þungt haldin, en þó hafinn henni skánað eilítið á ný. Grannt er fylgst með fimmtán manns, sem hún hafði umgengist eftir að hafa smitast. Enginn þeirra hafi þó sýnt nein einkenni ebólusmits.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×