Erlent

Lögregla yfirheyrir lækna

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Lögreglan mun yfirheyra 80 manns vegna mikillar yfirvinnu lækna.
Lögreglan mun yfirheyra 80 manns vegna mikillar yfirvinnu lækna. NORDICPHOTOS/GETTY
Læknar í Västernorrland í Svíþjóð vinna svo mikið að lögreglan hefur hafið rannsókn vegna þess. Fjöldi lækna hefur tilkynnt um samtals sjö þúsund yfirvinnutíma undanfarin tvö ár.

Samkvæmt vinnutímalöggjöfinni er leyfilegt að vinna 200 yfirvinnutíma á ári. Leyfilegt er að vinna 150 yfirvinnutíma til viðbótar krefjist aðstæður þess. En í Västnorrland eru dæmi um lækna sem hafa unnið 600 yfirvinnutíma á ári. Samkvæmt fréttum sænskra fjölmiðla fagna læknar rannsókn lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×