Hart barist í borginni Fallúdja Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. janúar 2014 06:00 Herská samtök heimamanna í Fallúdja hafa tekið höndum saman við stjórnarherinn um að hrekja liðsmenn Al Kaída frá borginni. Nordicphotos/AFP
Núrí al Malíki, forsætisráðherra Íraks, gaf engar leiðbeiningar um það hvernig íbúar í Fallúdja ættu að fara að því að hrekja burt frá borginni liðsmenn herskárra samtaka, sem sjálf segjast vera í tengslum við Al-Kaída-samtökin. Samtökin, sem nefnast Íslamskt ríki í Írak og Austurlöndum nær, náðu í síðustu viku borginni á sitt vald. Einnig náðu þau borginni Ramadí á sitt vald að miklum hluta, en báðar þessar borgir eru í Anbar-héraði, sem er vestan við höfuðborgina Bagdad og stærsta hérað landsins. Stjórnarherinn umkringdi Fallúdja í gær og var reiknað með hörðum átökum. Tugir fjölskyldna flúðu frá borginni en al Malíki hvatti hermenn stjórnarhersins eindregið til þess að hlífa íbúðarhverfum borgarinnar. Stjórnarherinn hefur undanfarna daga reynt að hrekja uppreisnarmennina frá Fallúdja. Átök á sunnudaginn milli uppreisnarmanna annars vegar og stjórnarhersins og vopnaðra heimavarnarsveita kostuðu að minnsta kosti 34 manns lífið, þar á meðal að minnsta kosti tíu almenna borgara. Þessi sömu herskáu samtök hafa barist í Sýrlandi gegn stjórnarher Bashars al Assad forseta. Jafnframt hefur andstaðan við stjórn al Malíkis magnast innan Íraks, ekki síst vegna þess að al Malíki er sjía-múslimi og hefur ekki leyft súnní-múslimum að hafa mikil ítök í stjórn landsins. Uppreisnarmennirnir eru súnní-múslimar, ýmist aðkomumenn frá öðrum löndum, sem eru uppistaðan í Íslömsku ríki í Írak og Austurlöndum nær, eða heimamenn sem til þessa hafa verið í andstöðu við stjórn al Malíkis en hafa nú á síðustu dögum tekið höndum saman við stjórnarherinn um að hrekja aðkomumennina frá Fallúdja.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Sjá meira