Blessun að vera laus við umfangsmikinn bankageira Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2014 15:46 „Við leyfðum bönkunum að verða gjaldþrota. Við björguðum þeim ekki, dældum ekki inn opinberu fé til að bjarga bönkunum,“ sagði forsetinn. Vísir/Valli „
Nú erum við helsta dæmið um land sem hefur náð sér,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti á Clinton Heimsþinginu, Clinton Global Initiative, sem hófst í New York á sunnudag og lýkur á morgun.Í frétt Dagens Industri kemur fram að að forsetinn hafi sagt fundargestum frá þeim efnahagserfiðleikum sem Ísland hafi gengið í gegnum og ráðlagt öðrum að óttast ekki að gera mistök þegar leiða er leitað til að vinna sig út úr efnahagsvanda. „Hér erum við, sex árum síðar,“ sagði forsetinn stoltur þegar hann bauð fólk velkomið til pallborðsumræðna á fundinum. Í greininni segir að þrátt fyrir takmörkuð völd embættisins, þá hafi það ekki komið í veg fyrir að forsetinn ákveði að tala fyrir nokkrum þeim úrræðum sem hann telji að hafi einna helst orsakað að Ísland hafi náð sér út úr kreppunni. „Þú verður að hafa vilja til að fara gegn ráðandi hugmyndum um hvað krefst til að ná árangri.“ Ólafur Ragnar sagði þessa „eigin leið“ Íslands hafi birst í því að Ísland hafi ákveðið að bjarga ekki bönkunum. „Við leyfðum bönkunum að verða gjaldþrota. Við björguðum þeim ekki, dældum ekki inn opinberu fé til að bjarga bönkunum.“ Í grein Dagens Industri kemur fram að forsetinn segi þessa leið hafa orðið fyrir valinu þrátt fyrir varnaðarorð og ráðleggingar sérfræðinga og annarra landa. „Í dag mælist atvinnuleysið milli 4 og 5 prósent og hagvöxtur um 3 prósent,“ segir forsetinn og skýtur svo á bankageirann. „Það hefur nefnilega verið blessun að þessi stóri bankageiri sé horfinn. Sú mikla sköpunargáfa sem var áður læst inni í húsum fjármálafyrirtækja hefur leitað annað þar sem hún hefur gert meira gagn.“ Forsetinn var meðal frummælenda í einni málstofu þingsins þar sem fjallað er um nýtingu hreinnar orku í þágu sjálfbærni og efnahagsþróunar og um hvernig áföll og kreppur geta leitt til nýsköpunar og framfara.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira