Lífið

Sjáið Brad Pitt breikdansa

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Brad Pitt er nú önnum kafinn við að kynna nýjustu mynd sína, Fury.

Hann gaf sér tíma til að taka upp sprenghlægilegt atriði með spjallþáttaprinsinum Jimmy Fallon fyrir The Tonight Show.

Í atriðinu, sem fylgir fréttinni, sjást þeir Brad og Jimmy spjalla með því að breikdansa. Eins og sést einnig í myndbandinu er það frekar augljóst að Brad og Jimmy eru ekki sjálfir að breikdansa allan tímann og hafa greinilega notast við áhættuleikara þegar atriðið var tekið upp.

Engu að síður er það mjög fyndið.

Þeir félagar hafa áður tekið upp sambærilegt atriði þeir sem þeir spjölluðu á milli húsþaka með jóðli.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.