Lífið

Geri Halliwell trúlofuð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Kryddpían Geri Halliwell er trúlofuð Formúlu 1-stjörnunni Christian Horner en þau hafa verið par síðan í byrjun árs.

Geri og Christian tilkynntu fréttirnar í dagblaðinu The Times í dag og fetuðu þannig í fótspor leikarans Benedict Cumberbatch sem tilkynnti trúlofun sína í dagblaði fyrir stuttu.

Geri og Christian sáust fyrst opinberlega saman í mars í ár en þau hafa verið vinir síðustu fimm ár. Þau eiga bæði börn úr fyrri samböndum - Geri á dótturina Bluebell, átta ára og Christian á dótturina Oliviu, eins árs. 

Christian skildi við fyrrverandi eiginkonu sína, Beverly Allen, stuttu eftir að Olivia kom í heiminn en Geri hætti með síðasta kærasta sínum, Anton Kaszubowski árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.