Ezequiel Lavezzi,framherji Paris Saint-Germain, telur að koma David Luiz til Paris Saint-Germain muni styrkja liðið. Parísarmenn gerðu Luiz að einum dýrasta varnarmanni sögunnar þegar kaupin gengu í gegn frá Chelsea.
Luiz sem er 27 ára brasilískur landsliðsmaður gekk til liðs við PSG fyrir 50 milljónir evra á dögunum og mun hann leika við hlið félaga síns úr landsliðinu, Thiago Silva í höfuðborg Frakklands. Búast má við að PSG muni fá til sín fleiri leikmenn á næstu vikum þrátt fyrir að hafa endurheimt franska titilinn nokkuð örugglega í vor.
„Ég er handviss um að David Luiz muni styrkja liðið og hjálpa okkur að koma því á næsta stig. Með kaupunum á Luiz fengum við reynslumikinn varnarmann sem mun koma vel út við hlið Thiago Silva. Vonandi nær klúbburinn að halda öllum sínu bestu leikmönnum og bæta við öðrum betri leikmönnum til að taka næsta skref,“ sagði Lavezzi.
Lavezzi: Koma Luiz styrkir liðið
Kristinn Páll Teitsson skrifar

Mest lesið




„Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“
Fótbolti




Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn


Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti