Íbúum Borgundarhólms fækkar enn Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2014 10:46 Kirkja heilags Nikulásar í bænum Rønne á Borgundarhólmi. Mynd/Wikipedia
Íbúum á dönsku eyjunni Borgundarhólmi heldur áfram að fækka og eru nú orðnir færri en 40 þúsund talsins. Að sögn yfirvalda voru skráðir íbúar 39.922 á mánudaginn og er það í fyrsta sinn í meira en hundrað ár sem íbúar mælast færri en 40 þúsund. Íbúar voru flestir um 49 þúsund á sjöunda áratug síðustu aldar, en þá snerist þróunin við og íbúum tók að fækka. Í frétt danska ríkisútvarpsins segir að allt frá þeim tíma hafi 40 þúsund manna mörkin verið álitin mjög táknræn - tákn um þann ótta að ekki sé mögulegt að bjarga eyjunni færi íbúafjöldinn undir 40 þúsund. Fyrrverandi borgarstjórinn Thomas Thors segist hryggur vegna þróunarinnar, en segir hana þó ekki koma á óvart. Í byrjun þessarar aldar hafði hann haft umsjón með að sameina Borgundarhólmsamt og fimm sveitarfélög á eyjunni í eitt, stærra sveitarfélag, þar sem sveitarfélögin á eyjunni hafi verið of smá til að starfa á skilvirkan hátt. Fæðingartíðni síðustu ár hefur farið úr um 600 fæðingum á ári í tæpar 250. Á þeim tíma bjuggu 44.500 manns á eyjunni, en tíundi hver maður hefur flutt á brott síðan. Thors segir að nauðsynlegt sé að berjast áfram fyrir að skapa aukin atvinnutækifæri á eyjunni. Hann segir ekki hægt að sveitarfélagið dragi vagninn eitt og vill Thors meina að stjórnmálamenn eyjarinnar verði að krefjist aukinnar fjárveitingar frá ríki til sveitarfélagsins. „Þetta snýst ekki um að við séum að betla peninga. Þeir staðir í landinu sem búa við vöxt eru skyldug til að aðstoða við að tryggja almennileg búsetuskilyrði á einangruðu svæði eins og Borgundarhólmi,“ segir Thors.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Sjá meira