Innlent

Foreldrar mótmæla niðurskurði

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrirhugaður niðurskurður bitni sérstaklega illa á Nesskóla á Nesskaupsstað og vegið sé að réttindum þeirra sem minnst mega sín.
Fyrirhugaður niðurskurður bitni sérstaklega illa á Nesskóla á Nesskaupsstað og vegið sé að réttindum þeirra sem minnst mega sín. Vísir/Stefán
„Við, stjórn foreldrafélags og fulltrúar foreldra í skólaráði Nesskóla, mótmælum fyrirhuguðum niðurskurðaraðgerðum í grunnskólum Fjarðabyggðar sem samþykktar voru af fulltrúum meirihlutans á fundi fræðslunefndar 25. nóvember síðastliðinn.“

Þetta kemur fram í opnu bréfi til bæjaryfirvalda Fjarðabyggðar. Þar sem segir að fyrirhugaður niðurskurður bitni sérstaklega illa á Nesskóla á Neskaupstað og vegið sé að réttindum þeirra sem minnst mega sín, eins og börnum sem eiga við námsörðugleika að stríða.

Skorað er á bæjarráð að hafna nýjum viðmiðunarreglum um úthlutun kennslutímamagns og standa vörð um fram tíð barnanna.

„Þetta gengur þvert á þann anda sem ríkir nú í þjóðfélaginu þar sem rík áhersla er lögð á að bæta læsi og minnka brottfall úr framhaldsskólum. Einnig teljum við að brýnt sé að hlúa að starfsmönnum skólans sem vinna nú þegar undir miklu álagi,“ segir í bréfinu.

Foreldrarnir minna á kosningaloforð meirihlutans um að standa vörð um skólana í Fjarðabyggð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×