Koma fundnu synir Bosníu á óvart í Brasilíu? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2014 09:30 Edin Dzeko, framherji Englandsmeistara Manchester City, er markahrókur Bosníumanna. Vísir/Getty
Af þeim 32 þjóðum sem taka þátt á HM í sumar, er aðeins ein sem er að þreyta frumraun sína á stóra sviðinu: Bosnía-Hersegóvína. Eftir að hafa tapað fyrir Portúgal í umspilsleikjum um sæti á HM 2010 og EM 2012 náði þetta litla og fámenna ríki loks að komast á stórmót. Þetta verður reyndar ekki í fyrsta skipti sem bosnískir knattspyrnumenn spila á HM, en nokkrir slíkir spiluðu undir merkjum sameinaðrar Júgóslavíu á árum áður. Fremstur þeirra var leikmaður að nafni Safet Susic - núverandi landsliðsþjálfari Bosníu.Heyrði skothvelli á hverjum degi Bosnía skoraði 30 mörk í leikjunum tíu í undankeppninni - aðeins Þýskaland, Holland og England skoruðu fleiri - og eins og geta má nærri er sóknarleikurinn í fyrirrúmi hjá liðinu. "Við verðum að spila eins og við höfum verið að spila. Ég veit að þetta hljómar kannski óþroskað frá taktísku sjónarhorni, en það væri rangt að spila öðru vísi," segir Susic um leikstíl Bosníu. "Við vitum að við opnum okkur of mikið og það er mikil áhætta sem fylgir því hvernig við spilum, en það væri ekki sanngjarnt gagnvart stuðningsmönnunum, leiknum og okkur sjálfum ef við myndum bæla niður þá hæfileika sem búa í liðinu." Í sóknarleik Bosníu mæðir mest á Edin Dzeko, markahæsta leikmanni í sögu bosníska landsliðsins. Dzeko, sem hefur spilað frábærlega fyrir Manchester City á síðustu vikum, fór ekki varhluta af stríðinu sem geisaði í Bosníu á fyrri hluta 10. áratugarins. "Ég fæddist rétt áður stríðið braust út og ólst upp í Sarajevo meðan á umsátrinu um borgina stóð," sagði Dzeko um æskuárin. "Á hverjum degi heyrðir maður skothvelli og við misstum bæði vini og ættingja. Minningarnar fylgja manni alltaf, þetta var hræðilegur tími og ég átti mjög sára og sorglega æsku." Heimili fjölskyldu Dzekos var lagt í rúst í loftárás og þau neyddust til að flytja til ömmu hans og afa, þar sem öll fjölskyldan bjó undir einu litlu þaki. Sagan segir einnig að móðir Dzekos hafi eitt sinn kallað á Dzeko að koma heim rétt áður en sprengja féll á fótboltavöllinn þar sem hann hafði verið að leika sér.Asmir Begovic ver mark Stoke í ensku úrvalsdeildinni.Vísir/gettyVöldu að spila fyrir föðurlandið Stríðið í Bosníu var vettvangur hræðilegra stríðsglæpa, þ.á.m. fjöldamorðanna í Srebrenica, þar sem her Bosníuserba undir stjórn Ratkos Mladic myrti 8.000 múslimska menn og drengi á griðasvæði Sameinuðu þjóðanna í júlí 1995. Meðan á stríðinu stóð neyddust einnig 2,2 milljónir Bosníumanna til að flýja heimili sín. Margir flúðu land, en af þeim sökum eru margir leikmenn bosníska landsliðsins aldir upp utan heimalandsins. Miralem Pjanic, Asmir Begovic, Ermin Bicakcic, Sejad Salihovic, Haris Medunjanin, Zvejzdan Misimovic, Senad Lulic og Vedad Ibisevic eru meðal þeirra leikmanna liðsins sem hafa aldrei búið í Bosníu svo heitið geti, eða spilað í deildinni heima fyrir. Þeir völdu samt að spila fyrir Bosníu, þrátt fyrir að eiga þess kost að spila fyrir önnur landslið. Medunjanin - sem missti föður sinn í stríðinu - varð t.a.m. Evrópumeistari í tvígang með U-21 árs landsliði Hollands og Begovic spilaði með Kanadamönnum á HM U-20 ára 2007 og var nokkrum sinnum valinn í A-landslið þeirra. "Bosníska blóðið rann alltaf í æðum mér," sagði Begovic um ákvörðun sína í viðtali við Daily Mail í janúar. "Ég sneri ekki aftur fyrr en ég var kominn á þrítugsaldurinn, þegar ég var viðstaddur jarðarför afa míns. Þar hitti ég hluta af fjölskyldu minni sem ég hafði ekki séð í áraraðir. Ég upplifði sársaukann, allt það slæma sem gerðist, árin sem ég missti af. Þetta var mjög tilfinningarík ferð og þá ákvað ég að spila fyrir Bosníu, stæði mér það til boða." Þrátt fyrir að Pjanic hefði spilað fyrir yngri landslið Lúxemborgar og Frakkland hefði gert hosur sínar grænar fyrir honum var aldrei neinn vafi í huga hans. "Það var aldrei spurning hvaða land ég myndi vilja spila fyrir," sagði Pjanic í viðtali við bosníska dagblaðið SAN. "Bosnía var minn fyrsti og eini kostur." Alls þurftu tíu af þeim 24 leikmönnum sem Susic valdi í HM-hópinn að breyta um ríkisfang til að spila fyrir bosníska landsliðið.Miralem Pjanic leikur með Roma á Ítalíu.Vísir/gettyÆtla ekki bara að vera með Mál sem þessi eru erfið og flókin - eins og við Íslendingar höfum fengið að kynnast - en Bosníumenn hafa notið góðs af breytingu á þeirri reglu FIFA sem áður meinaði leikmönnum með tvöfalt ríkisfang að skipta um landslið eftir að þeir urðu 21 árs. Án þessarar reglubreytingar er hætt við að Bosnía myndi spila á HM í sumar. Í áðurnefndu viðtali talar Susic um að það hafi þurft að eltast við leikmenn af bosnískum ættum og fá þá til að spila fyrir landsliðið. Hann segir enn fremur að málið muni vandast til muna eftir tíu ár þegar kemur að þriðju eða fjórðu kynslóðar Bosníumönnum sem búa utan heimalandsins. "Það verður erfitt að telja þá á að spila fyrir land afa þeirra," segir Susic, en af þeim sökum segir hann mikilvægt fyrir Bosníu að komast inn á HM og önnur stórmót. Bosnía fer þó ekki til Brasilíu bara til að vera með, en Susic hefur sett stefnuna á 16-liða úrslit. Bosnía dróst í riðil með Argentínu, Nígeríu og Íran, svo möguleikinn er svo sannarlega fyrir hendi. Þrátt fyrir að leikmennirnir komi úr ólíkum áttum mynda þeir eina sterka heild og bosníska liðið hefur á undanförnum árum sýnt að því eru flestir vegir færir.Þessi grein birtist fyrst í helgarblaði Fréttablaðsins 10. maí. Fréttablaðið mun hita vel upp fyrir HM í Brasilíu í næstu helgarblöðum og auðvitað hér á Vísi.
Fótbolti Mest lesið „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Ísland - Króatía | Brons í boði Handbolti „Bæði lið eru á felgunni“ Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Sigvaldi skráður til leiks Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Sjá meira