Innlent

„Þetta kemur á óvart"

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Ákvörðun þingflokksins kom Halldór á óvart.
Ákvörðun þingflokksins kom Halldór á óvart.
„Þetta kemur á óvart,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík um þá ákvörðun þingflokks Sjálfstæðismanna að draga aðildarumsókn Íslands í Evrópusambandið til baka.

„Ég reiknaði með því að þetta yrði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hefði viljað klárað aðildarviðræðurnar, það hefur alltaf verið mín afstaða,“ útskýrir Halldór ennfremur.

Halldór segist þó löngu hafa verið búinn að gera sér grein fyrir stöðu mála innan flokksins. „Þetta er ekki mál málanna í dag, þannig að ég er frekar rólegur yfir þessu,“ segir Halldór.

Halldór situr í stjórn Sjálfstæðra Evrópumanna sem skoruðu á ríkisstjórnina að taka ekki afstöðu í Evrópumálum fyrr en skýrsla Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands liggur fyrir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×