Fótbolti

Lykilmenn heltast úr lestinni

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Montolivo hryggur en vonar það besta
Montolivo hryggur en vonar það besta vísir/getty
Ítalía, Gana og Mexíkó urðu fyrir áföllum í gær þegar liðin léku æfingaleiki fyrir heimsmeistaramótið í Brasilíu í sumar.

Riccardo Montolivo var borinn af leikvelli þegar Ítalía gerði markalaust jafntefli við Írland. Óvíst er með þátttöku hans á HM vegna þess.

Montolivo fór í tæklingu við Alex Pearce og fór af leikvelli þegar átta mínútur voru til leiksloka.

Montolivo hefur tvær vikur til að jafna sig í ökklanum fyrir fyrsta leik Ítalíu á HM sem er gegn Englandi.

Mexíkó skellti Ekvador 3-1 í gærkvöldi en Luis Montes fótbrotnaði í leiknum og missir því af HM.

Meiðsli miðjumannsins hafði mikil áhrif á liðsfélaga hans sem margir hverjir felldu tár þegar hann var borinn af leikvelli illa meiddur.

Þriðji leikmaðurinn sem meiddist í gær var miðvörðurinn Jerry Akaminko miðvörður Gana.

Hann var borinn af leikvelli þegar Gana tapaði 1-0 fyrir Hollandi í Rotterdam með brákað bein í vinstri ökkla.

Akaminko verður frá næstu þrjá mánuði. Hann þarf að gangast undir aðgerð og missir því af HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×