West Ham í þriðja sæti | Sjáið mörkin Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 7. desember 2014 00:01 Carroll skallar boltann í markið Vísir/Getty
West Ham United lagði Swansea City 3-1 á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Staðan í hálfleik var 1-1.Wilfried Bony kom Swansea City yfir á 19. mínútu eftir laglegan undirbúning Gylfa Þórs Sigurðssonar og Jefferson Montero. Markið kom þvert gegn gangi leiksins en West Ham United var mun sterkari aðilinn framan af leik. Eftir markið snérist leikurinn og Swansea náði yfirhöndinni. Annað mark leiksins var því einnig gegn gangi leiksins en Andy Carroll skallaði boltann laglega í netið fjórum mínútum fyrir hálfleik eftir góð fyrirgjöf Carl Jenkinson. Fyrsta mark Carroll á tímabilinu. West Ham hóf seinni hálfleikinn af krafti og náði nú að nýta yfirburði sína því Carroll skoraði aftur með skalla, nú eftir hornspyrnu Stewart Downing á 66. mínútu. Tveimur mínútum síðar var Lukasz Fabianski rekinn af leikvelli fyrir að brjóta á varamanninum Diafra Sakho fyrir utan teig en Chris Foy dómari sá ekki að Sakho handlék knöttinn rétt áður en markvörðurinn lenti á honum. Þrátt fyrir að vera manni færri reyndi Swansea að sækja og jafna metin og það nýtti West Ham sér þegar Sakho stakk vörn Swansea af og skoraði sjöunda markið sitt í níu leikjum og gerði út um leikinn. West Ham lyfti sér upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er með 27 stig í 15 leikjum. Swansea er með 22 stig í 8. sæti.Bony kemur Swansea yfir: Carroll jafnar metin: Carroll skorar aftur og Fabinaski rekinn útaf: Sakho gerir út um leikinn:
Enski boltinn Mest lesið Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Enski boltinn „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Íslenski boltinn Magnús Eyjólfsson er látinn Sport Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta Fótbolti Sló Íslandsmetið í sleggjukasti Sport Fleiri fréttir Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Rodri og Foden klárir í slaginn Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Ósáttur við aðgerðaleysið: Dreg fram skóna sjálfur Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland „Ég vil hundrað prósent sjá hann aftur í Newcastle-treyju“ Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Tottenham beinir sjónum sínum að besta unga leikmanninum Telur X-faktorinn Eze vera púslið sem Arsenal vantaði Frimpong strax úr leik hjá Liverpool Leeds kaupir Okafor og liðin í ensku úrvalsdeildinni aldrei eytt meiru Wirtz strax kominn á hættusvæði Ljóst hvenær Liverpool og Man. Utd mætast Af hverju tekur svona langan tíma að fá niðurstöður í kærurnar? Mynd af Jota það síðasta sem leikmenn Liverpool sjá Arsenal að stela Eze frá Tottenham Framherjunum fækkar aftur hjá Arsenal Isak sást á æfingasvæði Newcastle í dag Á að reka umboðsmanninn á stundinni Kannast ekkert við fullyrðingar Fabrizio Romano Valdi úrvalslið Púllara: „Hefði átt að setja Djimi Traoré í vörnina“ Arnar um breytingar Liverpool: „Eins og copy-paste af PSG“ Arsenal skoðar markaðinn vegna meiðsla Havertz „Skilyrði félagsins fyrir sölu hafa ekki verið uppfyllt“ Dóttir Scholes fékk svakalegt augnaráð frá pabba sínum Sjá meira