Skrýtið að spila við stráka sem þú þekkir erlendis Kristinn Páll Teitsson skrifar 5. ágúst 2014 06:30 Viðar er kominn með átján mörk í átján leikjum í Noregi, átta mörkum meira en næsti maður. Fréttablaðið/Daníel „
Þetta var nú meiri leikurinn. Bæði liðin höfðu spilað fínan varnarleik fram að þessu en ég veit ekki hvað gerðist. Það mætti halda að markið hefði verið eitthvað stærra í þessum leik, maður trúði þessu ekki,“ sagði Viðar Örn Kjartansson, framherji Valerenga, þegar Fréttablaðið heyrði í honum í gær. Viðar virtist hafa tryggt Valerenga stigin þrjú þegar hann kom liðinu 5-2 yfir um miðbik seinni hálfleiks en Björn Daníel Sverrisson náði að skora jöfnunarmark Viking í uppbótartíma og lauk leiknum með 5-5 jafntefli. Viðar hefur nú skorað fimm mörk í síðustu þremur leikjum eftir að hafa ekki skorað í fjórum leikjum í röð og er hann lang markahæstur í deildinni með átján mörk í átján leikjum. „Ég var búinn að vera óheppinn í undanförnum leikjum og ég vissi að ég myndi byrja að skora aftur fljótlega. Ég var að fá færin en ég var að setja hann í slánna og ég vissi að þetta myndi koma. Þetta voru allskonar mörk sem ég skoraði í leiknum og það er jákvætt fyrir liðið að ég skori fjölbreytt mörk,“ sagði Viðar. Fimm Íslendingar voru í liði Viking í leiknum og komu alls fimm íslensk mörk en ásamt mörkum Viðars og marki Björns Daníels bætti Indriði Sigurðsson við marki. „Það er mjög skrýtið að heyra íslensku út um allan völl þegar þú ert að spila erlendis. Maður þekkir alla þessa stráka og það er skrýtið að spila við stráka sem þú þekkir erlendis. Ég veit ekki hvort þetta sé þægilegt eða óþægilegt, þetta er öðruvísi,“ sagði Viðar sem hafði betur gegn Sverri Inga Ingasyni í leiknum. „Hann hefur átt leiki sem hann er með mig í vasanum og svo er það öfugt líka. Ég átti góðan leik á laugardaginn en það var bara ekki spiluð vörn í þessum leik,“ sagði Viðar.
Fótbolti Tengdar fréttir Fimm íslensk mörk í ævintýralegum leik Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að fara á kostum í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 2. ágúst 2014 17:57 Mest lesið Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Handbolti Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Enski boltinn „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Íslenski boltinn Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Íslenski boltinn Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Fótbolti Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Golf Nýr Camp Nou míglekur Fótbolti Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Harmsaga Mudryk heldur áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Manchester United - Sabah FK | Mæta nýliðunum eftir þriggja ára fjarveru Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Sjá meira
Fimm íslensk mörk í ævintýralegum leik Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að fara á kostum í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 2. ágúst 2014 17:57