Íslenska markametið er fallið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2014 06:00 Jón Daði Böðvarsson.
Fyrsta mark Hólmars Arnar Eyjólfssonar fyrir Rosenborg um síðustu helgi var ekki aðeins tímamótamark fyrir hann sjálfan heldur bætti hann með því íslenska markametið í erlendri deild. Íslensku mörkin eru nú orðin 62 talsins í Tippeligaen 2014 en Hólmar Örn varð fimmtándi íslenski knattspyrnumaðurinn sem skoraði í norsku deildinni á þessu tímabili. Gamla metið var varla orðið kalt því íslenskir leikmenn skoruðu 61 mark í hollensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Þetta met hefur því fallið tvisvar sinnum á sjö mánuðum en hafði áður lifað í tæp sextán ár. Afrek íslenskra leikmanna í Noregi eru afar áberandi á topplistanum eins og sjá má að 8 af 10 markahæstu tímabilum íslenskra leikmanna í erlendri deild voru tímabil í norsku úrvalsdeildinni. Íslendingar hafa verið í algjörum sérflokki af erlendum leikmönnum í norsku deildinni í ár en Ísland er með tvöfalt fleiri mörk en Danmörk sem er í 2. sæti í markakeppni erlendra leikmanna.Alfreð Finnbogason fór fyrir íslenska metárinu í fyrravetur en hann skoraði þá 29 mörk fyrir Heerenveen. Það er það mesta sem íslenskur leikmaður hefur skorað á tímabili en Viðar Örn Kjartansson fær fimm leiki til viðbótar til að verða sá fyrsti í 30 mörkin. Íslenska markametið féll tvisvar á árinu 2014 en eftir nokkur íslensk mörk til viðbótar í norsku deildinni er ekki ólíklegt að það met haldist óhaggað í mörg ár. Uppgangur íslenskra fótboltamanna er hins vegar það kraftmikill að hver veit nema metið verði aftur í hættu á næstu árum.
Fótbolti Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti „Einhver vildi losna við mig“ Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti Fleiri fréttir Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Fyrirmenni fótboltans á Norðurlöndum mæta til Íslands í vikunni Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum „Er að koma inn í hlutverk sem ég veit að ég er góð í“ „Einhver vildi losna við mig“ Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Lehmann færir sig um set á Ítalíu Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG „Þetta var bara út um allt“ Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi KR fær þýskan varnarmann Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Sjá meira