Tileinkaði sigurinn markverðinum með rakvélablaðið Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. júní 2014 12:15 Claudio Bravo, markvörður Síle, hefur spilað vel á mótinu. Vísir/getty
Síle skellti heims- og Evrópumeisturum Spánar, 2-0, á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gærkvöldi eins og flestum er kunnugt. Þetta var fyrsti leikur Síle á Maracana-leikvanginum sögufræga í Ríó í 25 ár, eða síðan rakvélablaðsskandallinn kom upp 3. september 1989. Brasilía og Síle áttust þá við í undankeppni HM 1990 sem haldin var á Ítalíu. Brassar voru 1-0 yfir þegar blysi var hent inn á völlinn sem lenti nálægt markverði Síle, RobertoRojas. Rojas féll til jarðar og virtist sem svo að blysið væri ástæða þess. Andlit hans var alblóðugt og neyddist argentínskur dómari leiksins að flauta hann af. Daginn eftir sönnuðu ljósmyndir og sjónvarpsupptökur það sem Rojas játaði síðar, að blysið fór ekki í hann heldur skar hann sig sjálfur til blóðs með rakvélablaði sem hann geymdi í öðrum markmannshanskanum. Rojas fékk lífstíðarbann frá knattspyrnu fyrir athæfið og var Síle meinuð þátttaka í undankeppni HM 1994. Nú er öldin aftur á móti önnur og er Síle komið áfram í útsláttarkeppni HM annað skiptið í röð. „Já, það er satt. Maracana hefur mikla þýðingu fyrir fótboltann í Síle út af þessu atviki en það er kominn tími til að fara að gleyma þessu,“ sagði markvörðurinn ClaudioBravo við vef FIFA eftir leikinn. „Þetta var slæmt atvik sem ég sjálfur tengi við því þetta kom fyrir markvörð. Ég býst við að þessi leikur [gegn Spáni] hafi verið mjög sérstakur fyrir Roberto. Ég tileinka honum því að hluta til sigurinn. Fótboltinn gefur þér stundum tækifæri til að snúa við blaðinu og þetta er sönnun þess,“ sagði Claudio Bravo. Atvikið frá 1989:
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Heimsmeisturunum hent heim Heimsmeistarar Spánverja eru á heimleið. Það er ljóst þó svo enn eigi eftir að spila eina umferð í riðlakeppninni. Hörmulegir Spánverjar töpuðu gegn Síle í kvöld, 2-0. 18. júní 2014 13:30 Allir fengu núll nema Iniesta Viðbrögð spænskra fjölmiðla láta ekki á sér standa. 19. júní 2014 07:11 Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Íslenski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lét menn heyra það á HM: „Þetta er smá sorglegt“ Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Maður dagsins: Þjálfari hans hjálpaði honum að þroskast Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Sjá meira
Heimsmeisturunum hent heim Heimsmeistarar Spánverja eru á heimleið. Það er ljóst þó svo enn eigi eftir að spila eina umferð í riðlakeppninni. Hörmulegir Spánverjar töpuðu gegn Síle í kvöld, 2-0. 18. júní 2014 13:30
Allir fengu núll nema Iniesta Viðbrögð spænskra fjölmiðla láta ekki á sér standa. 19. júní 2014 07:11