Yfirgefa Afganistan eftir þrettán ára veru Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. desember 2014 08:45 Hershöfðinginn John Campbell fjarlægir fána ISAF-sveitanna. vísir/afp
Hersveitir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan (ISAF) munu ekki taka þátt í frekari hernaðaraðgerðum þar í landi. Þar með lýkur þrettán ára hersetu Bandaríkjamanna í landinu. Í gær fór fram athöfn þar sem fáni ISAF var dreginn niður og fáni nýs verkefnis hífður að húni. Nýja verkefnið hefur fengið nafnið Resolute Support en þeir sem taka þátt í því munu koma að þjálfun afganskra lögreglu- og hermanna. Undirbúningur þess hefur staðið lengi en því var formlega ýtt úr vör í gær. „Við höfum leitt afgönsku þjóðina úr myrkrinu og gefið henni von um bjartari framtíð,“ sagði hershöfðinginn John Campbell í ræðu á athöfninni. Þegar ISAF var sem stærst voru í því yfir 130.000 hermenn af yfir fimmtíu þjóðernum. Alls týndu um 3.500 erlendir hermenn lífinu við störf sín í Afganistan. Eftir áramót verða eingöngu um 12.000 manns eftir og á enginn þeirra að taka þátt í bardögum. „Öryggismál Afganistan munu héðan í frá vera alfarið í höndum þeirra 350.000 manna sem skipa lögreglu- og herlið landsins,“ segir Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, í yfirlýsingu. Árið sem nú er að líða undir lok er það blóðugasta í Afganistan síðan árið 2001 en tæplega 5.000 meðlimir öryggissveita landsins hafa fallið í bardögum við talibana.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira