Aron: Ísland mun komast á HM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. febrúar 2014 10:45 Aron Jóhannsson í leik með AZ Alkmaar í Hollandi. Vísir/Getty
Aron Jóhannsson segir að hann ætli að gera allt sem hann geti til að vinna sér sæti í leikmannahópi Bandaríkjanna fyrir HM í Brasilíu. Aron, sem er uppalinn hér á landi en fæddur í Bandaríkjunum, valdi á sínum tíma að gefa fremur kost á sér í bandaríska landsliðið en það íslenska. Bandaríkin keppir á HM í Brasilíu í sumar en Aron hefur verið fastamaður í hópi Jürgen Klinsmann landsliðsþjálfara síðan hann varð gjaldgengur í liðið. „Ég reyni að einbeita mér að því að æfa vel á hverjum degi og standa mig vel með AZ,“ sagði Aron í samtali við vefmiðilinn Goal.com. „Það væri mikill heiður fyrir mig að komast með liðinu til Brasilíu og ótrúlegt að fá að spila á stærsta sviði knattspyrnunnar.“ „Ef allt fer að óskum gæti 2014 orðið mikilvægasta ár ferilsins míns. Það er draumur hvers knattspyrnumanns að spila á HM og sýna heiminum hversu góður maður er.“ Hann segist hafa fylgst vel með gengi Íslands í undankeppni HM en strákarnir töpuðu fyrir Króatíu í umspil um sæti í keppninni. „Ég var að vona að Ísland myndi komast á HM en því miður tókst það ekki. Þeir eru að verða betri og betri. Þetta tekst fljótlega hjá þeim.“ Aron var valinn í íslenska landsliðið í október árið 2012 en hann gat ekki gefið kost á sér vegna nárameiðsla. „Þetta hefði getað farið allt öðruvísi hefði ég spilað með Íslandi. En það gerðist ekki og nú spila ég með Bandaríkjunum. Það er ástæða fyrir öllu sem gerist.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Fótbolti Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Körfubolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Enski boltinn Besti árangur Íslendings á EM í 24 ár Sport Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sjá meira