Erlent

Fimm Svisslendingar fórust í þyrluslysi

Atli Ísleifsson skrifar
Þyrlan hrapaði í garði skammt frá flugvellinum í franska bænum Montbeliard.
Þyrlan hrapaði í garði skammt frá flugvellinum í franska bænum Montbeliard. Vísir/AFP
Fimm Svisslendingar fórust þegar þyrla hrapaði skammt frá bænum Montbeliard í austurhluta Frakklands, nærri svissnesku landamærunum, fyrr í dag.

Að sögn franskra yfirvalda slösuðust tveir til viðbótar í slysinu.

Í frétt SVT segir að fólkið hafi verið í sendinefnd á leið í verksmiðju Peugeot í Frakklandi.

Þyrlan, sem er af gerðinni EC130, hafði tekið á loft frá svissnesku borginni Lausanne og hrapaði í garði nærri flugvellinum í Montbeliard.

Ekki liggur fyrir um orsök slyssins, en sjónarvottar segja þyrluna hafa fallið líkt og steinn til jarðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×