Sænsku ríkisstjórnarflokkarnir í sókn Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2014 11:40 Stefan Löfven, formaður Jafnaðarmanna, og Fredrik Reinfeldt, formaður Moderaterna, vilja báðir gegna embætti forsætisráðherra Svíþjóðar að kosningum loknum. Vísir/AFP
Nýjustu skoðanakannanir benda til að mun mjórra verði á munum milli fylkinga í sænsku þingkosningunum en áður var talið. Svíar ganga að kjörborðinu næstkomandi sunnudag. Rauðgrænu stjórnarandstöðuflokkarnir hafa mælst með um tíu prósenta forskot síðustu mánuði en í nýrri könnun Novus fyrir TV4 mælist forskot Jafnaðarmannaflokksins, Umhverfisflokksins og Vinstriflokksins á ríkisstjórnarflokkana fjóra einungis fimm prósent. Könnunin er í samræmi við aðra nýlega könnun United Mindes fyrir Aftonbladet þar sem forskotið mælist rúm fjögur prósent. Munurinn á fylkingunum hefur ekki mælst minni síðan 2012. „Jafnaðarmenn geta ekki verið jafnöruggir um kosningasigur og áður,“ segir stjórnmálafræðingurinn Felix Åberg. „Nú er raunverulegur möguleiki fyrir okkur að sigra,“ segir Kent Persson, framkvæmdastjóri Moderaterna, flokks Fredriks Reinfeldt forsætisráðherra í samtali við Expressen. Kristilegir demókratar, Þjóðarflokkurinn og Miðflokkurinn bæta allir við sig fylgi í könnun Novus. Miðflokkurinn bætir við sig 1,8 prósent og hefur fylgi flokksins ekki mælst meira síðan 2010. Er aukningin fyrst og fremst rakin til góðrar frammistöðu formannsins og atvinnuvegamálaráðherrans Annie Lööf í kappræðum formanna flokkanna í aðdraganda kosninganna. Hinir borgaralegu ríkisstjórnarflokkar mælast nú saman með 41,3 prósent fylgi, en þeir rauðgrænu með 46,3 prósent. Svíþjóðardemókratar, sem standa utan bandalaga, mælast með 9,5 prósenta fylgi. Niðurstöður skoðanakönnunar Novus (framkvæmd 3.-7. september 2014)Borgaralegu flokkarnirModeraterna 22,4 prósent Þjóðarflokkurinn 6,5 prósent Miðflokkurinn 6,9 prósent Kristilegir demókratar 5,5 prósentRauðgrænu flokkarnir Jafnaðarmannaflokkurinn 30,6 prósent Umhverfisflokkurinn 8,6 prósent Vinstriflokkurinn 7,1 prósentAðrir Svíþjóðardemókratar 9,5 prósent Feminískt frumkvæði 2,2 prósent 10,9 prósent aðspurðra tóku ekki afstöðu.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Sjá meira