Kínverjar draga úr losun skaðlegra efna Freyr Bjarnason skrifar 25. september 2014 07:00 Zhang Gaoni, varaforseti Kína, ávarpar loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Fréttablaðið/AP
Kínverjar hafa ákveðið, fyrir árið 2020, að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 45 prósent frá því magni sem var losað árið 2005. Þetta kom fram á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem lauk í New York á þriðjudag. Vegna þess að hagvöxtur í Kína hefur meira en þrefaldast frá árinu 2005 fær þjóðin samt undanþágu næstu árin til að halda áfram að menga mest allra þjóða í heiminum. Umhverfisverndarsinnar fagna engu að síður ákvörðun kínverskra stjórnvalda um að draga úr losuninni því hingað til hafa þau lítið viljað fylgja slíkum tilmælum. Barack Obama Bandaríkjaforseti hvatti þjóðir heimsins til að fylgja fordæmi Bandaríkjanna í loftslagsmálum. „Bandaríkin hafa fjárfest ríkulega í hreinni orku og dregið umtalsvert úr losun gróðurhúsalofttegunda,“ sagði Obama. „Í dag bið ég allar þjóðir að ganga til liðs við okkur, ekki á næsta ári eða árið þar á eftir, heldur núna. Vegna þess að engin þjóð getur tekist á við þessa alheimsvá alein.“ Engin þeirra loforða sem sett voru fram á ráðstefnunni eru bindandi. Þess í stað átti ráðstefnan að leggja grundvöllinn fyrir nýjan loftslagssáttmála sem verður samþykktur síðar. Rúmlega 150 þjóðir samþykktu að eyðing skóga yrði úr sögunni fyrir árið 2030 og er það í fyrsta sinn sem slíkur lokafrestur er ákveðinn. Bandaríkin, Kanada og Evrópusambandið skrifuðu undir yfirlýsingu um að minnka eyðinguna um helming fyrir árið 2020. Árið 2030 á henni síðan að ljúka. Ef markmiðið næst segja Sameinuðu þjóðirnar það jafngilda því að ef allir bílar heimsins yrðu teknir af götunum. Þar að auki lofuðu Norðmenn að eyða rúmum 40 milljörðum króna í verndun skóga í Perú og öðrum tólf milljörðum í verndun skóga í Líberíu.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira