Svíar ætla að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2014 09:42 Stefan Löfven kynnti nýja ríkisstjórn sína í morgun. Vísir/AFP
Stefan Löfven, nýr forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að sænsk stjórnvöld muni viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Þetta kom fram í stefnuræðu Löfvens í sænska þinginu fyrr í dag. Deilur hafa lengi staðið um samband Svíþjóðar og Palestínu. Árið 2012 sagði Carl Bildt, þáverandi utanríkisráðherra, að Svíar ættu ekki að viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Þáverandi stjórnarandstaða mótmælti því harðlega og sögðu leiðtogar Umhverfisflokksins meðal annars að afstaða ríkisstjórnarinnar væri óskiljanleg. Ný minnihlutastjórn jafnaðarmanna og Umhverfisflokksins var kynnt í morgun. „Deilu Ísraela og Palestínu er bara hægt að leysa með tveggja ríkja lausn,“ sagði Löfven. Löfven tilkynnti jafnframt að að umsókn að NATO væri ekki á dagskrá. Einnig greindi hann frá því að mögulegt væri að sérstök lög yrðu sett árið 2016 um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja, þar sem þess verði krafist að 40 prósent stjórnarmanna verði konur. Löfven skýrði frá því að sérstakt ráðherraembætti aðlögunarmála verði lagt niður, þar sem „leiðin inn í Svíþjóð og réttur til atvinnu og velferðar, sé málefni sem snerti alla.“ Þá sagði forsætisráðherrann að til stæði að koma upp sérstakri stofnun sem rannsaki rasisma. Einnig verði Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna að sænskum lögum. „Svíþjóð ætlar að tryggja réttindi minnihluta og unnið skal gegn rasisma í skólum,“ sagði Löfven.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira