Greiða full laun þrátt fyrir hráefnisskort Sveinn Arnarsson skrifar 26. nóvember 2014 00:01 Brimberg borgar úr eigin vasa þegar hráefnisskortur er annars vegar. vísir/gva
Fiskvinnslufyrirtækið Brimberg á Seyðisfirði hefur síðastliðin tvö ár greitt með atvinnuleysistryggingum þegar hráefnisskortur er annars vegar og þannig tryggt starfsmönnum sínum full laun á meðan. Þetta gerir fyrirtækið til að tryggja starfsöryggi verkafólks. Fréttablaðið sagði frá því í gær að atvinnuleysistryggingasjóður hafi greitt á síðustu fjórum árum rúman milljarð í laun fiskvinnslufólks þegar hráefnisskortur er annars vegar. Fiskvinnslufyrirtækin þurfa hins vegar að taka á sig fyrstu tíu dagana á hverju ári, fimm á hvorum helmingi til að eiga kost á útgreiðslu úr sjóðnum. Adolf Guðmundsson, stjórnarformaður Brimbergs, segir þetta hluta af kjörum starfsfólks til að tryggja öryggi þess. „Við höfum á síðustu tveimur árum sett um það bil 15 milljónir árlega til viðbótar við atvinnuleysistryggingar þannig að starfsfólk okkar haldi fullum launum þrátt fyrir hráefnisskort. Öryggi fólks skiptir okkur miklu máli og ef fólk finnur fyrir óöryggi missum við starfsmenn frá okkur.“ Hann segir fyrirtækið ekki hafa þurft að segja upp fólki. „Á móti kemur að við segjum ekki fólki upp þrátt fyrir hráefnisleysi og höfum ekki verið að segja upp fólki yfir jól og áramót þegar hráefnisskortur er oft viðvarandi.“
Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug Innlent Fleiri fréttir Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Sjá meira