Innlent

Grímur hittir Pussy Riot í Tallinn

Jakob Bjarnar skrifar
Grímur Atlason var viðstaddur þegar rætt var við Pussy Riot í Tallinn. Þær elska sitt Rússland en eru meðal helstu andstæðinga Putins.
Grímur Atlason var viðstaddur þegar rætt var við Pussy Riot í Tallinn. Þær elska sitt Rússland en eru meðal helstu andstæðinga Putins. Grímur

Grímur Atlason framkvæmdastjóri Iceland Airwaves er nú staddur úti í Tallinn, höfuðborg Eistlands, þar sem fram fer Tallinn Music Week – tónlistarhátíð. Hann var ráðstefnuna Culture Riot: Listamenn og tónlist gegn allsherjarreglu. Þar var pallborðsviðtal við meðlimi Pussy Riot, sem Artemyi Troitsky Artemyi „Artjom“ Troitsky tók, en hann er áhrifamikil menningarfígúra í Rússlandi og tónlistarblaðamaður.



Pussy Riot elska Rússland

Grímur segir þetta hafa verið mjög áhrifamikið. „Þær voru þarna tvær úr Pussy Riot, þessar sem voru í fangelsi. Aðalsprauturnar í pönksveitinni þeirri. Þær voru að segja frá reynslu sinni og hvað þær voru að gera. Sögðust elska Rússland. Þær eru föðurlandsvinir. En á móti Putin og hans stefnu. Þær segja hann vera að eyðileggja allt sem rússneskt er. Það er það sem er að fara með landið,“ segir Grímur.

Spurður segist hann ekki hafa gefið sig á tal við Pussy Riot, segist ekki vera þannig gæi. „Ég er ekki þannig náungi. How do you like Iceland? Það eru aðrir í því. Nei, ég gerði það á sínum tíma og þá voru þær settar í fangelsi. Það var nú það sem gerðist þá,“ segir Grímur sem reyndi á sínum tíma að fá pönksveitina til að troða upp á Íslandi og var þá kominn í góð sambönd við umboðsmann þeirra, sem jafnframt var í sambandi við eina úr hljómsveitinni. En, það fór eins og það fór.



Boðnar fúlgur fyrir tónleikahald

Grímur segir svo frá að Pussy Riot hafi verið boðið fúlgur fjár fyrir að fara í tónleikaferð, af fyrirtækjum sem standa fyrir miklum tónlistaruppákomum um heim allan. „Í gær var þeim boðið stórfé og stóð til boða að túra um heiminn. Þær höfnuðu því alfarið.



Þær koma fram þar sem ekki eru haldir tónleikar. Poppa upp. þetta er gjörningaband og mótmælaband. Hafa aldrei gefið út neitt. En, hér er allt brjálað. Rússneski minnihlutinn var hérna og mikið stuð í gangi. En þessar stelpur eru ekki að koma til Íslands nema bara til að tjá sig. Því miður.“



Ilves talar enga tæpitungu

Forseti Eistlands, Toomas Hendrik Ilves, talaði einnig á fundinum og segir Grímur þar alvöru mann á ferð. Og dregur hvergi úr því. Ilves hafi ekki pakkað skoðunum sínum í gjafapappír, og talað skýrt gegn skoðanakúgun, tengja list því og þeirri ógn sem stafar frá Rússlandi Putins. Grímur segir það áhrifaríkt og setja hlutina í samhengi að vera svo nærri átökunum sem nú eiga sér stað í Rússlandi og Úkraínu. Sú ógn sé ætíð nálæg í Eystrasaltslöndunum.



„Eftir að hafa hlustað á hann skammast ég mín enn meira fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sem kom hingað til Tallin sumarið 2011, og lét hylla sig sem frelsishetju fyrir afrek Jóns Baldvins Hannibalssonar þá utanríkisráðherra Íslands á þessum slóðum. Stal þeim heiðrinum. Ég man ekki eftir því að hann hafi lagt mikið til málanna á sínum tíma,“ segir Grímur, undir miklum áhrifum frá Ilves. Hann telur forseta Íslands heldur smáan í þeim samanburði og vísar til þess að hann hafi ekki sagt styggðaryrði í átt til Rússlands Putins, heldur þvert á móti.


Tengdar fréttir

Putin ætlar að náða fyrrverandi olíubarón

Vladimir Putin, forseti Rússlands ætlar að náða Mikhail Khodorkovsky. Sagðist hann hafa fengið beiðni frá fanganum um náðun á grundvelli mannréttinda, því móðir hans væri veik.

Pussy Riot frjálsar á morgun

Þjóðþingið í Rússlandi hefur samþykkt lög Vladimír Pútíns Rússlandsforseta um að náðanir fanga í Rússlandi.

Meðlimir Pussy Riot beittir ofbeldi

Ráðist var á meðlimi Pussy Riot af opinberum starfsmönnum í Sotsjí. Réðust þeir að þeim með svipum og táragasi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×