Fíkniefnabrotum fjölgaði en hegningarlagabrotum fækkaði Samúel Karl Ólason skrifar 11. september 2014 16:04 Vísir
Kynferðisbrotum fjölgaði hlufallslega mest hegningarlagabrota, árið 2013. Helsta ástæða þess er að vændismál voru rúmlega fjórum sinnum fleiri árið 2013 en þau voru árið 2012. Alls fækkar hegningarlagabrotum um þrjú prósent á milli ára, en sérrefsilagabrotum fjölgar um rúm tvö prósent. Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að sú hækkun sé til komin vegna fjölgunar fíkniefnabrota. Þetta kemur fram í skýrslunni Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2013, sem lögreglan gefur nú út í áttunda sinn. Ekkert manndráp átti sér stað á höfuðborgarsvæðinu árið 2013 en þó voru fjórar manndrápstilraunir skráðar hjá lögreglunni. Ofbeldisbrotum fjölgar um þrjú prósent á milli ára og voru þau 781 árið 2013. Þá fækkar auðgunarbrotum um fimm prósent, en að mestu er það vegna fækkun innbrota. Að jafnaði var tilkynnt um tvö innbrot á dag eða 71 innbrot á mánuði. Þar af voru um 38 prósent þeirra á heimili. Í tilkynningunni segir til samanburðar að árið 2010 hafi að meðaltali verið framin sex innbrot á dag. Í fyrra voru 1.514 fíkniefnabrot skráð hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og hefur þeim verið að fjölga á síðustu árum. Þá einkum vegna fjölgunar brota er varða vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna og sölu þeirra og dreifingu. Þá var lagt hald á töluvert meira magn fíkniefna árið 2013 en árið 2012. Mest var tekið af maríjúana, eða um tæplega 31 kíló, og af amfetamíni, eða um 28 kíló. 17.539 einstaklingar voru kærðir fyrir brot í fyrra. Þar af voru 72 prósent karlar og 28 prósent konur. Um 76 prósent þeirra voru kærð fyrir umferðalagabrot. Flestir voru kærðir fyrir of hraðan akstur, eins og í fyrra, eða 10.283 einstaklingar. 590 konur og1.991 karl voru kærð fyrir hegningarlagabrot í fyrra. Flest þeirra voru á aldrinum 21 til 30. Hins vegar voru flestar konur á aldrinum 15 til 20 ára.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira