Stefán Haukur skipaður ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. september 2014 15:47 Stefán Haukur Jóhannesson nýr ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu.
Stefán Haukur Jóhannesson, fyrrverandi formaður samninganefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu frá og með 1. nóvember næstkomandi. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra skipar í stöðuna og var starfsmönnum ráðuneytisins tilkynnt þetta fyrr í þessum mánuði. Einar Gunnarsson, sitjandi ráðuneytisstjóri, verður fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York frá og með 1. janúar næstkomandi. Í millitíðinni sinnir Einar öðrum verkefnum fyrir ráðuneytið. Stefán Haukur, sem er lögfræðingur að mennt, hefur starfað í utanríkisráðuneytinu frá 1986.Hann var starfsmaður fastanefnda Íslands gagnvart NATO í Brussel og WTO í Genf frá 1987-1993. Hann var formaður samninganefndar um aðild Rússlands að WTO frá 2003. Viðræðum lauk í nóvember 2011 og jákvæð niðurstaða um aðild Rússlands samþykkt í desember 2011. Stefán Haukur var leystur frá störfum sem formaður samninganefndar Íslands gagnvart ESB þegar samningahóparnir voru leystir upp eftir alþingiskosningar í fyrra. Í kjölfarið fór hann m.a. að sinna sérverkefnum fyrir utanríkisráðuneytið hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, og fór m.a. til Úkraínu. Var hann meðal þeirra sem fóru á vettvang eftir að farþegaþota Malaysia Airlines í flugi MH17 var skotin niður af uppreisnarmönnum í austurhluta Úkraínu sl. sumar.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Fleiri fréttir Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Sjá meira