Barðist hetjulega áður en hann féll Samúel Karl Ólason skrifar 16. september 2014 23:37 Lík Ríkarðs fannst undir bílastæði árið 2012. Vísir/AP
Ríkarður þriðji, konungur Englands, sem lést í orrustu árið 1485 er sagður hafa orðið fyrir fjölda sára áður en hann lést. Vísindamenn sem rannsakað hafa lík hans sem fannst undir bílastæði í Englandi árið 2012, segja hann líklega hafa fengið sárin sem ollu dauða hans eftir að hestur hans festist í mýri, eins og Shakespeare hefur gert frægt. Meðal þess sem vísindamenn hafa skoðað er skökk mæna Ríkarðs, en hennar vegna kallaði Shakespeare konunginn kroppinbak. Með því að skanna beinagrindina fundust mörg sár sem hann hlaut í orrustu. „Ríkarður þjáðist líklega mikið áður en yfir lauk,“ hefur AP fréttaveitan eftir Söruh Hainsworth sem tók þátt í rannsókninni. Hún segir að líklega hafi nokkrir menn gert atlögu að konunginum eftir að hann steig af hesti sínum. Alls fundust ellefu sár á beinagrind Ríkarðs, en níu þeirra voru á höfuðkúpu hans. Þar á meðal eftir hnífa, sverð og langt vopn sem notað var til að draga riddara af hestum sínum. Eitt sárið sýndi fram á að Ríkarður hafði fengið gat á höfuðkúpuna eftir sverð. Ríkarður var síðasti konungur Englands sem féll í orrustu, en hún átti sér stað þann 22. ágúst 1485. Þar börðust Ríkarður og Henry Tudor. Sagnfræðingur við Oxford segir að niðurstöður rannsóknarinnar beri saman við aðrar heimildir um að Ríkarður hafi barist hetjulega áður en hann var veginn.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Fleiri fréttir Trump boðar gjaldtöku á Hormuz-sundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Sjá meira