Hörð mótmæli í Stokkhólmi Atli Ísleifsson skrifar 30. ágúst 2014 15:49 Talsverð spenna var í miðborg Stokkhólms fyrr í dag. Vísir/AFP
Fimmtán voru handteknir í miðborg Stokkhólms þar sem sænskir nasistar héldu útifund við Jacobsbergsgatan fyrr í dag. Þúsundir manna komu svo saman skammt frá til að mótmæla nýnasistaflokknum Flokki Svía. Mörg þúsund manns komu saman í Kungsträdgården um miðjan dag til að mótmæla því að nasistar fengju að halda útifund þar skammt frá. „Ég er hér til að mótmæla gegn nasismanum og lögreglunni. Mér finnst að lögum sé ekki fylgt ef maður leyfir nasistum að mótmæla,“ sagði Katja Hildén, einn mótmælenda í samtali við SVT. Spennan á svæðinu jókst verulega þegar nokkrir einstaklingar hófu að kasta bengalljósum og kveikja í hvellhettum í Kungsträdgården. Lögregla segir þó að meirihluti mótmælenda hafi verið til friðs. Á vef Aftonbladet segir að þrír lögreglumenn hafi slasast í átökum við mótmælendur, en lögregla hefur reynt að halda nýnasistunum og andstæðingum þeirra aðskildum eftir fremsta megni. Lögregla handtók fjölda manns fyrir að brjóta lög um að klæðast grímum, auk þess að nokkrir voru teknir höndum fyrir að klifra upp á þak Stokkhólmsóperunnar.Nýnasistar komu saman í miðborg Stokkhólms fyrr í dag.Vísir/AFPVísir/AFPVísir/AFP
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Fleiri fréttir Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Sjá meira