Kaká: Ég fæ vel borgað en þetta snýst ekki um peninga Tómas Þ'or Þórðarson skrifar 3. júlí 2014 09:00 Kaká spilar í Bandaríkjunum á næsta ári. vísir/getty
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Kaká er nýjasta stjarnan sem ætlar að spreyta sig í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta, en hann var kynntur til leiks sem fyrsti leikmaður nýs liðs Orlando City í vikunni. Kaká fékk samningi sínum hjá AC Milan rift áður en hann skrifaði undir við bandaríska liðið. Þar sem Orlando hefur ekki leik fyrr en á næsta ári mun hann spila með uppeldisfélagi sínu Sao Paulo fram að því. „Undir lok síðustu leiktíðar fór ég að hugsa um framtíð mína; hvort ég færi aftur til Brasilíu, færi til Bandaríkjanna eða yrði áfram hjá Milan,“ segir Kaká en þvertekur fyrir að peningarnir hafi lokkað hann í MLS-deildina. „Það var erfitt að yfirgefa AC Milan, en ég býst við því að fótbolti muni verða stærsta íþróttin í Bandaríkjunum. Þeir borga mér vel, en mér buðust meiri peningar annarsstaðar. Ég pæli meira í verkefninu framundan.“ „Ég var hjá Milan í sex ár, Real í fjögur ár og spilaði í Brasilíu í níu ár þannig ég hugsa alltaf til lengri tíma. Ég fæ vel borgað en ég gæti fengið meira hjá öðrum liðum,“ segir Kaká. Brasilíumaðurinn leitaði ráða hjá David Beckham, fyrrverandi samherja sínum hjá AC Milan, áður en hann skrifaði undir hjá Orlando en Beckham varð tvöfaldur meistari með Los Angeles Galaxy í MLS-deildinni og er að stofna nýtt lið í Miami. „Ég held þetta sé rétti tímapunkturinn því ég er ekki of gamall og ekki of ungur. Ég get enn komið með mikið inn í deildina sem er alltaf að verða betri. Ég er að kynna mér deildina þessa dagana. Bróðir minn og Beckham spiluðu hérna. Ég talaði mikið við Beckham. Þegar ég hef svo leik finn ég út hvernig ég get hjálpað að bæta liðið,“ segir Káka.
Fótbolti Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Sjá meira