Þjóðverjar skemmdu heimsmeistarabikarinn Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 20. júlí 2014 21:15 Fagnað með bikarinn vísir/getty
Wolfgang Niersbach forseti þýska knattspyrnusambandsins hefur viðurkennt að heimsmeistarabikarinn sem Þjóðverjar fengu með sér frá Brasilíu hafi skemmst í fagnaðarlátunum. Þýskaland varð heimsmeistari í fjórða sinn þegar liðið lagði Argentínu í úrslitaleiknum á HM 1-0 í framlengdum leik 13. júlí. Í vikunni á eftir fögnuðu Þjóðverjar innilega í Berlin með heimsmeistarabikarinn meðferðis. Skemmtunin fór aðeins úr böndunum því bikarinn skemmdist í fagnaðarlátunum. „Á einum tímapunkti flísaðist smá bútur úr heimsmeistarabikarnum,“ sagði Niersbach í þýskum fjölmiðlum. „Hafið ekki áhyggjur. Við eigum sérfræðinga sem geta lagað þetta. „Við rannsökuðum ítarlega hver skemmdi bikarinn en rannsóknin skilaði engum árangri.“ Sem betur fer fyrir Þýskaland fékk liðið einungis að fara með eftirlíkingu af bikarnum sem liðið fékk afhentan á Maracana vellinum en hann er metinn á yfir 10 milljónir evra. Eftir að Jules Rimet bikarnum var stolið 1983 frá Brasilíu hefur Fifa ekki treyst heimsmeisturunum fyrir heimsmeistarabikarnum. Brasilía vann Jules Rimet bikarinn til eignar árið 1970.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Fótbolti Tekur á sig gagnrýni svo aðrir fái hana ekki Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Sjá meira